Árið 2025 voru rétt rúmlega 80 þúsund flugleggir keyptir með Loftbrú.
Kostnaður ríkisins við niðurgreiðsluna nam rúmlega 740 milljónum.
Til stendur að gera breytingar á Loftbrú og greiða 9000 krónur af hverjum fluglegg í stað 40%. Verði nýtingin sú sama á næsta ári, með nýja fyrirkomulaginu, mun það kosta ríkið 720 milljónir.
Meðalniðurgreiðslan rétt rúmlega níu þúsund
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9242 krónur árið 2025.
Hæsta niðurgreiðsla vegna Loftbrúar að meðaltali var frá Höfn í Hornafirði eða rúmlega 9576 krónur. Þar rétt á eftir komu Akureyri og Egilsstaðir. Aðrir áfangastaðir yfir níu þúsund krónum voru Ísafjörður og Húsavík.
Lægsta niðurgreiðsla var í flugi frá Vopnafirði og Þórshöfn eða rúmlega fjögur þúsund krónur á fluglegg. Vert er þó að taka fram að í skýrslu Vegagerðarinnar frá nóvember 2025 segir að ríkið hafi niðurgreitt um 107 þúsund krónur með hverjum farþega á þessum leiðum með ríkisstyrktu innanlandsflugi.
Hæsta niðurgreiðsla rétt undir 25.000 krónum
Af þeim 80 þúsund flugleggjum sem voru keyptir með Loftbrú voru 795 sem kostuðu ríkið undir þúsund krónum.
Alls voru þrettán flugleggir keyptir þar sem að niðurgreiðslan var yfir 24.000 krónum. Flestir flugleggir voru keyptir með niðurgreiðslu á bilinu sjö til tíu þúsund krónur, eða 34.022 alls.
„Þetta er bara svart á hvítu, þetta er að bitna mest á landsbyggðinni“
Harkalega hefur verið tekist á um Loftbrúna undanfarna daga en Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, er orðin sátt við niðurstöðuna um 9000 króna niðurgreiðslu:
„Auðvitað fréttirnar sem komu fyrir helgi, ég var ekki sátt við þær þegar átti að halda þeim 600 milljónum inn í sem voru settar í fjárlög inn í Loftbrúnni. Ráðherra bætti þar og ætlar að bæta 200 milljónum við og það er það mesta sem hefur verið sett í Loftbrúna frá upphafi,“
Landshlutasamtök á Norðurlandi eystra og Austurlandi, sem eru í kjördæmi þingmannsins, eru hins vegar enn bálreið yfir breytingunum. SSA sendi frá sér harðorða ályktun í dag þar sem krafist er að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum og segir þar meðal annars: „Þegar fulltrúar landsbyggðarinnar lýsa aðgerðum stjórnvalda sem aðför að búsetuskilyrðum verður þeirri gagnrýni ekki vísað frá sem einberri upplifun.“
Heimir Örn Árnason er formaður SSNE. Hann tekur í sama streng og SSA, segir að allt samráð við ákvörðunina hafi skort og bendir á aðrar lausnir.
„Við erum afskaplega ósátt með þessa breytingu sem kom mjög snöggt upp á. Þetta er gríðarlega stór ákvörðun sem hefur áhrif á landsbyggðina. Mér finnst samráðið ekki mikið og ekki leitað eftir góðum hugmyndum. Hugmyndir Þórodds Bjarnasonar um fast verð á ákveðnum flugleggjum er ein af góðum hugmyndum. Það er ágætt að hafa hækkað úr sjö þúsund í níu þúsund og það er gott. En að heyra ráðherra að tala um að við séum enn að kvarta undan þessum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar er miður. Þetta er bara svart á hvítu, þetta er að bitna mest á landsbyggðinni.“