Hækka á kílómetragjaldið um ríflega 15% um næstu áramót. Magnús Barðdal, sveitarstjóri í Skagafirði, segir hækkunina bitna illa á sveitarfélaginu sjálfu og íbúum þess.
„Við erum með skólaakstur um allar sveitir, þar sem er gríðarlegur akstur á hverjum degi um allar sveitir til þess að koma börnum í skóla. Svo er þetta auðvitað flutningskostnaðurinn. Fyrir allar þær vörur sem við nýtum hér út á landi. Þetta kemur beint inn í verðlagið þar.“
Sveitarfélög hækki hóflega
Í umsögn Skagafjarðar um frumvarpið um breytingar á kílómetragjaldinu kemur meðal annars fram að hækkun sem þessi hafi bein áhrif á fyrirtæki og heimili, ásamt að hafa áhrif á þjónustusamninga sveitarfélagsins, til dæmis um skólaakstur. Þá segir Magnús skrítið að sveitarfélög haldi að sér höndum í gjaldskrárhækkunum á meðan ríkið hækkar kílómetragjaldið um ríflega 15%.
„Sveitarfélögin hafa stigið fram og lagt sín lóð á vogarskálarnar til þess að halda niðri verðbólgu og reyna að ná tökum á þessum verðbólgutölum sem eru að leika ríki, sveitarfélög og almenning í landinu mjög grátt, með því að hækka gjaldskrárnar aðeins um 2,5%. Það er því blaut tuska fyrir okkur sveitarfélögin að fá svona ríflega hækkun á gjaldi sem skilar sér bara í auknum kostnaði fyrir íbúa og sveitarfélagið.“ Hann vísar þarna til sameiginlegs átaks sveitarfélaga landsins að hækka gjaldskrár ekki nema um 2,5% um næstu áramót.
Aðeins brot af innheimtum gjöldum fer í vegaframkvæmdir
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eru 5,2% af fimmtán prósenta hækkun á kílómetragjaldinu vegna verðbólgu en restin vegna fjögurra milljarða króna tekjuauka ríkissjóðs.
Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins er áætlað að ríkið innheimti 83,9 milljarða af bifreiðum 2027. Aðeins 50 milljarðar eru áætlaðir í útgjöld til vegaframkvæmda og í rekstur og þjónustu á vegum. Þá kemur einnig fram að aðeins 39 krónur á hverjar hundrað af innheimtum gjöldum fari í viðhald og nýframkvæmdir á vegakerfinu.