Spænska fjölskyldufyrirtækið Boluda Shipping hefur keypt allt hlutafé flutningsfyrirtækisins Samskipa. Skrifað var undir kaupsamning á skrifstofu Samskipa í Kjalarvogi í dag.
Starfsmönnum Samskipa var tilkynnt um kaupin á starfsmannafundi eftir hádegi í dag.
Kaupverð trúnaðarmál
Ráðgert er að kaupin gangi í gegn 1. janúar 2027, að fengnu samþykki eftirlitsaðila og að uppfylltum öðrum skilyrðum. Kaupverðið er trúnaðarmál.
Stærstu hluthafar félagsins, Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir, ganga út úr eigendahópnum, en þau hafa byggt upp fyrirtækið í yfir 30 ár.
Sameinað félag myndar umfangsmesta sjóflutninganet Evrópu, allt frá Norður-Evrópu til Íberíuskagans, Kanaríeyja og Vestur-Afríku. Ráðgert er að í netinu verði 32 skip á 18 siglingaleiðum, 21 hafnarbakki, víðfeðmt lestarkerfi og yfir 500 flutningabílar sem tengja markaðinn í 28 löndum.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að sérstaða Samskipa felist í því að tengja skipaflutninga við lestir og flutningabíla. Starfsmenn félaganna eru um 11.500 manns og er samanlögð velta rúmlega tveir milljarðar evra.
Boluda „öflugur og traustur bakhjarl“
Ólafur Orri Ólafsson mun áfram sitja sem forstjóri samstæðu Samskipa.
„Við höfum byggt upp Samskip í meira en þrjá áratugi og gert félagið að leiðandi fyrirtæki í fjölþátta flutningum í Evrópu, með skipum, lestum og bílum,“ er haft eftir Ólafi í tilkynningu.
„Með Boluda fá Samskip öflugan og traustan bakhjarl sem deilir sýn okkar og hefur vilja til að fjárfesta í næsta vaxtarskeiði. Fyrir okkur fjölskylduna eru þetta góð tíðindi og ég er sannfærður um að hið sama eigi við um Samskip og íslenskt atvinnulíf.“
Flutningsfyrirtækið Samskip var stofnað árið 1990 og hóf formlega starfsemi sína snemma árs 1991. Félagið byggir á grunni skipadeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga (Sambandsins) sem stofnað var 1946 og sinnti millilandasiglingum í tæplega 50 ár.
Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Rotterdam í Hollandi og hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin. Í dag er það eitt af leiðandi flutningafyrirtækjum Evrópu. Starfsemi þess nær til yfir þrjátíu landa í Evrópu, Ameríku, Afríku, Asíu og Ástralíu.
Sinnt sjóflutningum og hafnarstarfsemi frá 1837
Boluda-fjölskyldan hefur verið tengd sjóflutningum og hafnarstarfsemi í nærri tvær aldir. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til ársins 1837 og hefur í gegnum kynslóðir þróast úr staðbundinni starfsemi í eitt af leiðandi alþjóðlegum fyrirtækjum heims á sviði dráttarþjónustu, vöruflutninga og hafnarþjónustu.
„Markmið okkar er skýrt: að styrkja stöðu okkar í sjóflutningum innan Evrópu og efla flutningsnetið í þágu viðskiptavina. Með öflugum tengingum og sérþekkingu Samskipa, ásamt reynslu okkar af sjóflutningum og flutningaþjónustu, náum við þeirri stærð sem þarf til að ná því markmiði. Við sjáum mikla möguleika á að efla tengingar innan Evrópu og við Vestur-Afríku og munum áfram leggja áherslu á skilvirkni, áreiðanleika og góða þjónustu við viðskiptavini okkar,“ er haft eftir Ignacio Boluda Ceballos, stjórnarformanni Boluda Shipping.