Sautján missa vinnuna hjá SORPU
SORPA hefur sagt upp tíu starfsmönnum og ákveðið að endurnýja ekki tímabundna ráðningarsamninga við sjö til viðbótar. Starfsfólki fækkar því um sjö prósent. Aðgerðirnar koma í kjölfar umfangsmikilla uppsagna hjá Reykjavíkurborg í gær og á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist verulega á milli ára.
SORPA hefur sagt upp tíu starfsmönnum í hagræðingarskyni. Auk þess verða tímabundnir ráðningarsamningar sjö starfsmanna ekki endurnýjaðir. Alls fækkar því starfsfólki fyrirtækisins um sautján, eða sjö prósent af heildarstarfsmannafjölda.
Samkvæmt tilkynningu SORPU er áætlað að aðgerðirnar skili rúmlega 200 milljóna króna sparnaði á ári. Þær koma í framhaldi af samþykkt stjórnar fyrirtækisins um að leita leiða til hagræðingar, meðal annars til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og tryggja að þær verði undir 2,5 prósentum.
Uppsagnirnar koma aðeins degi eftir að Reykjavíkurborg tilkynnti um umfangsmiklar uppsagnir og niðurskurð í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar. Aðgerðirnar eru ótengdar, þó félagið sé í sameiginlegri eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Eins og Heimildin greindi frá í gær samþykkti borgarstjórn að fækka stöðugildum um 74 á fimm sviðum og tveimur skrifstofum borgarinnar. Fimmtíu starfsmönnum var sagt upp, en …