Íris Erlingsdóttir skrifar:
„Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti,“ segir Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness. Orðin lýsa réttarkerfi þar sem valdsmenn geta framið ranglæti í nafni réttlætisins og jafnvel talið sig hafa réttinn sín megin.
Hálfri öld áður en Laxness skrifaði Íslandsklukkuna hafði breski rithöfundurinn Ouida, Marie Louise de la Ramée, einn vinsælasti rithöfundur Viktoríanska tímabilsins, varað við sömu hættu: valdi í höndum fólks sem er svo sannfært um eigið réttlæti að það kemur ekki auga á ranglætið sem það sjálft fremur.
Árið 1895 varaði Ouida við því að konur væru hneigðari til harðstjórnar en karlar og líklegri til að láta tilfinningar ráða dómgreind sinni þegar þær færu með vald. Hún óttaðist ekki aðeins að konur myndu setja vond lög, heldur að þær myndu setja óréttlát lög í þeirri fullvissu að þær væru að gera gott.
Í ritgerð sinni Female Suffrage frá árinu 1895 færði hún rök gegn því að konur fengju kosningarétt. Ekki vegna þess að hún teldi konur ófærar um að skilja stjórnmál, heldur vegna þess að hún taldi þær skorta annan og mikilvægari eiginleika: hæfileikann til að greina á milli eigin tilfinninga og óhlutdrægrar réttlætiskenndar.
Ouida hafði sérstakar áhyggjur af lagasetningum sem ætlað var að gera fólk „betra“, hvort sem það kærði sig um það eða ekki. Hún nefndi meðal annars áfengisbönn og lög sem takmörkuðu hvað fólki væri heimilt að gera á sunnudögum. Að hennar mati spruttu slík lög af þeirri sannfæringu að stjórnvöldum bæri skylda til að tryggja siðferðilega hegðun borgaranna og að þvinga siðferði upp á fólk með lögum væri óréttlát valdbeiting.
Ouida óttaðist að konur myndu ganga lengra en karlar í að skerða einstaklingsfrelsi. Þær myndu ekki endilega spyrja hvort lög væru réttlát, heldur hvort tilgangur þeirra væri góður.
Í réttlátu samfélagi eiga aðeins staðreyndir og sönnunargögn að skipta máli. Þessi grundvallarregla virðist þó í vaxandi mæli víkja fyrir kröfum um að við „trúum, styðjum og sýnum samstöðu“ með þeim sem vekur mesta samúð. Sá sem krefst sönnunargagna verður tortryggilegur, sá sem bendir á að ásökun sé ekki sakfelling er sakaður um að taka afstöðu gegn þolendum – eða öllu heldur þeim sem bera fram ásakanir. En réttlæti er ekki samkeppni í samúð.
Í áratugi hefur Íslendingum verið sagt að mikilvægasta verkefni samfélagsins sé að fjölga konum í valdastöðum. Umræða um hlutfall kynjanna byggist á þeirri forsendu að meirihluti karla sé vandamál sem þurfi að leiðrétta, en meirihluta kvenna er hins vegar fagnað sem merki um framfarir. En hver gætir jafnréttisins þegar konur eru yfirgnæfandi meirihluti innan stofnana samfélagsins eins og nú er raunin? Það er kaldhæðnislegt að á skrifstofu borgararéttinda í dómsmálaráðuneytinu starfa sjö konur og einn karl og sama hlutfall er á jafnréttisskrifstofu ráðuneytisins.
Þessi þróun vekur spurningar sem stjórnmálamenn virðast furðu tregir til að ræða. Ekki vegna þess að konur séu óhæfar til þessara starfa, heldur vegna þess að opinberar stofnanir eiga að þjóna allri þjóðinni.
Ein mikilvægasta athugun Ouida var sú að fólk gæti orðið svo sannfært um eigið réttlæti að það væri ófært um að koma auga á það ranglæti sem það sjálft fremdi. Þetta er sérstaklega hættulegt þegar valdið er í höndum þeirra sem telja sig berjast fyrir þá sem minna mega sín. Það er hægt að eyðileggja mannorð karls í nafni þess að vernda konur. Það er hægt að troða fótum réttindi sakbornings í nafni samstöðu með þolendum – eða þeim sem bera fram ásakanir, þagga niður gagnrýni í nafni þess að skapa „öruggt samfélag“ og kalla niðurstöðuna réttlæti. Þegar fólk telur málstað sinn hafinn yfir gagnrýni er stutt í að það telji sig sjálft hafið yfir gagnrýni.
Ouida taldi konur eigingjarnari, síður óhlutdrægar og hneigðari til harðstjórnar en karla. Hún var andvíg kosningarétti kvenna, ekki vegna þess að hún teldi þær heimskar eða vanhæfar, heldur vegna þess að hún taldi þær skorta þann eiginleika sem mestu máli skiptir þegar farið er með opinbert vald: óhlutdræga réttlætiskennd.
Á tímum Ouida börðust konur fyrir rétti sínum til þátttöku í stjórnmálum, en Ouida hafði sjálf efasemdir um almennan kosningarétt, einnig almennan kosningarétt karla. Hún taldi að pólitískt vald ætti að byggjast á þekkingu, dómgreind og ábyrgð, fremur en kynferði. Það sem hún óttaðist sérstaklega var að konur myndu þær fórna einstaklingsfrelsinu í nafni almannahagsmuna. Viðleitnin til að skapa betra samfélag gæti snúist upp í atlögu að frelsi einstaklingsins.
Engin harðstjórn er jafn hættuleg og harðstjórn þeirra sem telja sig ófæra um að fremja ranglæti.
Höfundur er fjölmiðlafræðingur