Í fréttatilkynningu segir:
„Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er liður í því að standa vörð um menningararf Úkraínu og efla tengsl þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins og er sýningin afrakstur náins samstarfs Listasafns Úkraínu, Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands.
Sýningin stendur í eitt ár. Að henni lokinni verða helgimyndirnar áfram í varðveislu hér á landi, þar sem öryggi þeirra verður tryggt á meðan stríðið í Úkraínu stendur yfir. Undirbúningur verkefnisins hefur staðið í rúmt ár í samvinnu við utanríkisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.“
Ríkuleg menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar
Samkvæmt Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, er sýningin mikilvægur sýnileiki verðmætrar arfleifðar.
„Hugmyndin að verkefninu kviknaði út frá þeirri ósk okkar að styðja við kollega okkar í Úkraínu og tryggja um leið að menningararfur landsins sé áfram sýnilegur almenningi og minni á hina ríkulegu menningararfleifð úkraínsku þjóðarinnar.
Við búum við þau forréttindi að lifa í einu friðsælasta landi heims og okkur langaði að rétta starfssystkinum okkar hjálparhönd, en þau hafa unnið við afar erfiðar aðstæður síðustu ár.
Við erum þakklát fyrir að njóta fulls stuðnings stjórnvalda og Þjóðminjasafns Íslands undir stjórn Hörpu Þórsdóttur þjóðminjavarðar,“ segir Ingibjörg.
Verkin erlendis í fyrsta sinn
Sýningarstjóri er dr. Oleksandra Shevliuga, sérfræðingur í úkraínskri listasögu og flestar myndanna koma úr kirkjum þar sem þær prýddu helgimyndaþilið (íkonóstasis) framan við altarið.
Þær bera vitni um sögu og samfélagsbreytingar í aldanna rás og um ríka hefð úkraínskrar textíl- og skreytilistar.
„Þetta er í fyrsta sinn í sögu safnsins sem þessi verk eru sýnd erlendis og nær allar myndirnar eru nú í fyrsta sinn utan Úkraínu,“ segir Yulia Lytvynets, safnstjóri Listasafns Úkraínu, og bætir við:
„Verkin voru hluti af fastasýningu safnsins sem tekin var niður árið 2022. Þau eru meðal fremstu verka úkraínskrar listar, allt frá miðaldamyndum eftir ónafngreinda meistara til glæsilegra barokkverka.
Hver mynd segir ekki aðeins sögu úkraínskrar helgimyndalistar heldur einnig sögu úkraínska ríkisins og safnsins okkar. Á þessum erfiðu tímum hafa kollegar okkar rétt okkur hjálparhönd, bæði við að vernda dýrmætustu menningarverðmæti okkar og við að kynna list úkraínsku þjóðarinnar.
Við erum ríkisstjórn Íslands, Listasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands óendanlega þakklát fyrir að standa vörð um þjóðararf Úkraínu.“
Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: