Íslandi hefur ítrekað verið lýst sem leiðandi í loftslagsmálum enda sé hér nær ekkert losað af gróðurhúsalofttegundum til þess að framleiða raforku og til þess að hita upp hús.
Þannig eru aðeins um fjörutíu kíló af koltvísýringi losuð á hvern Íslending árlega borið saman við 1.400 kíló í ríkjum ESB.
Þær tölur segja þau ekki alla söguna. Kolefnisfótspor Íslendinga er stærra en Evrópubúa í nær öllum öðrum flokkum eins og kom fram í samanburði sem var kynntur á Loftslagsdeginum, ráðstefnu um loftslagsmál í Hörpu í morgun.
Losun frá vegasamgöngum er þannig ríflega fjörutíu prósentum meiri á mann hér á landi en í Evrópu, tvöfalt meiri vegna landbúnaðar og margfalt meiri vegna landnotkunar, fiskiskipa og málmframleiðslu.
Meiri losun á hvert dýr
Flutningar með bílum frekar en lestum og lakari almenningssamgöngukerfi voru á meðal ástæðan sem Birgir Urbancic frá Umhverfis- og orkustofnun og Elín Björk Jónasdóttir frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu nefndu sem ástæður þess að losun á hvern íbúa vegna vegasamgangna væri hærri á Íslandi en í Evrópu.
Í landbúnaði sögðu þau að framleiðsla í sauðfjár- og nautgriparækt væri ekki aðeins hærri miðað við höfðatölu á Íslandi en í Evrópu heldur væri losun á hvert dýr hærra hér en á meginlandinu.
Hægt væri að draga úr losun frá landbúnaði með sjálfbæru eldsneyti á tæki og vélar og hnitmiðaðri áburðarnotkunar. Þá hefði orka sparast í grænmetisrækt með styrkjum til grænmetisbænda til þess að skipta ljósaperum í gróðurhúsum út fyrir LED-perur.
Í sérflokki í landnotkun og sjávarútvegi
Þekkt er að losun vegna landnotkunar er hlutfallslega há á Íslandi enda fámenn þjóð í tiltölulega víðfeðmu landi. Losun á mann vegna landnotkunar er þannig tæplega áttatíu sinnum meiri á Íslandi en í Evrópu.
Á móti kemur að binding vegna skógræktar er hátt í tvöfalt meiri á mann á Íslandi en á meginlandinu. Hluti skýringarinnar er þó að mælikvarðinn er árleg binding sem eykst á Íslandi með aukinn skógrækt.
Í Evrópu eru flestir skógar aftur á móti fyrir löng fullþroskaðir og binding þeirra helst stöðug, nema þegar skæðir gróðureldar breyta þeim í uppsprettu losunar líkt og gerst hefur ítrekað undanfarin sumur.
Ekki þarf að koma á óvart að losun vegna fiskiskipa er langtum meiri á Íslandi en í Evrópu almennt. Sjávarafurðir eru helsta útflutningsvara Íslands frá fornu fari en stór hluti Evrópuríkja er landluktur.
Súpa enn seyðið af seinagangi í flokkun sorps
Silagangur í að draga úr urðun á sorpi í samanburði við Evrópuríki skýrir hvers vegna losun á mann vegna úrgangs er rúmlega þrefalt meiri hér en ytra.
Birgir og Elín Björk sögðu að enn væri meira urðað á Íslandi en í Evrópu. Losun frá úrgangi á sér fyrst og fremst stað vegna rotnunar lífræns efnis sem er urðað yfir lengri tíma. Ísland súpi þannig enn seyðið af fortíðinni og að hafa ekki fyrr byrjað að skilja lífrænan úrgang frá almennu sorpi.
Umsvifamikil álver í fámennu landi eru ástæða þess að losun á hvern Íslending vegna málmframleiðslu er margföld á við Evrópubúa. Losunin er þó fyrst og fremst vegna framleiðslunnar sjálfrar frekar en raforkunnar sem nýtt.
Fyrstu skrefin í að fanga og farga koltvísýringi sem losnar frá íslenskum stóriðjuverum hafa þegar verið tekin. Carbfix, dótturfélag Orkuveitunnar, lauk rannsóknarborunum á Grundartanga til þess að kanna hvort jarðlög þar henti til þess að farga koltvísýringi í þessum mánuði. Stóriðjuver Elkem og Norðuráls á Grundartanga taka þátt í því verkefni.