VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um ályktun gegn viðskiptabanninu.
Sendiráðið sendi frá sér öryggisviðvörun vegna mótmælana og hvatti bandaríska ríkisborgara til að halda sig fjarri þeim. Þá var sendiráðinu lokað fyrr vegna þeirra.
Færri fordæmdu viðskiptabannið en áður
Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu viðskiptabann Bandaríkjanna í þrítugasta og fjórða skiptið þrátt fyrir tilraunir ríkisstjórnar Bandaríkjanna til að hafa áhrif á kosninguna.
130 þjóðir kusu með en 17 á móti og tóku 25 þjóðir ekki þátt. 160 þjóðir kusu með á síðasta ári og 12 tóku ekki þátt. Slíkar ályktanir af hálfu Sameinuðu þjóðanna eru ekki lagalega bindandi en endurspegla álit þjóða heimsins.
Þjóðir líkt og Þýskaland, Ítalía og Lettland sátu hjá við atkvæðagreiðsluna í fyrsta sinn. Bosnía, Kólumbía, Litáen, Marokkó og Slóvenía eru meðal þeirra þjóða sem kusu gegn því að fordæma viðskiptabannið, margar þeirra í fyrsta skipti.