Múslímavandi Samfylkingar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Talsmaður Samfylkingar í útlendingamálum segir varnaðarorð við ófriðarmenningu íslam jafngilda útlendingaandúð. Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður Samfylkingar andmælir ekki múslímskri kvenfyrirlitningu, hatri á trúfrelsi og fordæmingu samkynhneigðar. Fjölmennasta trúfélag múslíma hér á landi flutti til landsins þekktan trúarklerk einmitt með þennan boðskap. Morgunblaðið sagði fráen RÚV þegir.
Ása Berglind neitar að horfast í augu við þann veruleika að helstu trúarstef íslam eru ósamrýmanleg vestrænum gildum. Þingmaður Samfylkingar kenndi varnaðarorð Elliða Vignissonar bæjarstjóra við hatursorðræðu. Elliði hafði vakið athygli á tölfræði dönsku hagstofunnar um að innflytjendur frá múslímaríkjum, svokölluðum MENAPT-ríkjum, aðlagast seint og illa dönsku samfélagi og eru til muna líklegri en aðrir innflytjendur að komast í kast við lögin.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að Ísland taki upp skráningu á aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi. Tillagan kveður á um tölfræði innflytjenda frá MENAPT-ríkjum. Reynslan er að þeir skera sig úr. Auðvelt er að sjá hvers vegna.
Muhammad Taqi Usmani hélt trúarsamkomu í boði stórmoskunnar í Reykjavík, fjölmennasta trúfélags múslíma hér á landi. Boðskapurinn er að dauðarefsing sé viðeigandi gangi menn af trúnni, að sjaría-trúarlög séu æðri íslenskum rétti og að konur séu undirsettar karlinum. Allt kunnugleg stef úr íslam. Trúarmenning íslam hvílir á feðraveldi. Mannréttindaskrá múslímaríkja er Kairó-yfirlýsingin. Múslímaríki hafna sem sagt mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, er heiðrar jafnrétti kynjanna.
Í Kairó-yfirlýsingunni er eiginmaðurinn ábyrgur fyrir velferð fjölskyldunnar, stendur framar eiginkonunni, sjá gr. 6. Síðasta grein Kairó-skrárinnar segir svart á hvítu að túlkun og útskýringar mannréttinda skuli byggð á sjaría-lögum múslíma. Grundvallarmunur er á trúarlegum mannréttindum múlsíma og vestrænum veraldlegum mannréttindum. Í íslam trompar guðlast allt vestrænt málfrelsi, svo dæmi sé tekið.
Innflytjendur frá múslímaríkjum taka að heiman með sér trúarmenninguna. Í vestrænum viðtökuríkjum heimta þeir, í nafni vestræns trúfrelsis, að íslam skuli gilda þegar múslímar eru komnir í meirihluta í þorpi, bæjarfélagi eða jafnvel stöku íbúðarblokk. Vestrænt umburðalyndi, s.s. trúfrelsi, er af múslímum notað gegn vestrænum grunngildum eins og málfrelsi. Vestræna afstaðan er að trúarbrögð megi gagnrýna. Í íslam heitir það guðlast og skal beita hörðum viðurlögum. Í múslímaheiminum er ríkur stuðningur við sjaría-lög.
Múslímsk trúarmenning elur á andúð á borgaralegri menningu vesturlanda. Hatursorðræðan gegn vestrænum mannréttindum og gildum blasir við. Ása Berglind og Samfylking samþykkja með þögninni.
Ása Berglind og Samfylkingin segja gagnrýni á íslam beinast gegn útlendingum almennt. Viðhorfið er að varnaðarorð gegn íslam jafngildi árás á kaþólska kristni. Þessi málflutningur er út í hött. Engin umræða er um að kaþólikkar aðlagist ekki íslensku samfélagi. Sjálf vorum við kaþólsk frá kristnitöku til siðaskipta.
Af ástæðum, sem ekki liggja í augum uppi, er stefna Samfylkingar að draga fjöður yfir samfélagsvanda sem múslímar skapa í vestrænum viðtökuríkjum. Varnaðarorð gegn innflutningi múslíma eru byggð á margra áratuga reynslu Vestur-Evrópuríkja og Norðurlanda. Austur-Evrópuríki afþakka innflutning múslíma, eftir að hafa séð fyrstu hendi hnignun ríkjanna í vestri.
Ætli Samfylkingin sér þann hlut í íslenskum stjórnmálum að auka vægi fylgjanda spámannsins með tilheyrandi samfélagsvanda er tímabært að flokkurinn segi það hreint út.