Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá væru bandarískir ríkisborgarar hvattir til að forðast svæðið og gæta ávallt varúðar í grennd við mótmæli. Þeim sem kynnu að verða vitni eða fórnarlamb glæps var bent á að hafa samband við Neyðarlínuna.
„Jafnvel mótmæli sem eiga að vera friðsamleg geta snúist upp í átök og hugsanlega stigmagnast í ofbeldi,“ stóð í færslunni.
Sjá einnig: Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla
Miðað við myndir sem voru teknar á vettvangi um klukkan hálf sex í kvöld voru á bilinu þrjátíu til fjörutíu mótmælendur samankomnir við sendiráðið en þá mátti einnig sjá laganna verði skammt frá.