Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns og var kyrrstæð og mannlaus utandyra í Reykjavík um nótt og morgun í ágúst 2023, þegar atvik málsins áttu sér stað.
Tvær atrennur
Einn mannanna hafi um nóttina, gegn vilyrði um greiðslu hundrað þúsund króna, gert tilraun til að valda stórfelldum skemmdum á bílnum með því að skvetta bensíni undir og á bílinn og reyna að kveikja í honum. En þá hafi það ekki tekist.
Mennirnir þrír voru síðan ákærðir fyrir eignaspjöll með því að kveikja í bílnum seinna um morguninn. Í niðurstöðukafla úrskurðar héraðsdóms segir að við aðalmeðferð málsins hafi verjendur tveggja ákærðu krafist frávísunar málsins og verjandi þess þriðja tekið undir kröfur þeirra.
Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur þann 14. nóvember 2025 var að ákæran ætti ekkert erindi fyrir dómi þar sem leyfis frá ríkissaksóknara hefði ekki verið aflað. Það væri nauðsynlegt þar sem héraðssaksóknari færi ekki með ákæruvald í málum sem þessum, þar sem ákært er fyrir eignaspjöll.
Sjá einnig: Sneypuför í Teslubrunamáli kostar ríkið ellefu milljónir
Leiða má líkur að því að leyfið hafi svo verið veitt fyrst að málið var höfðað með ákæru útgefinni af héraðssaksóknara í febrúar þessa árs. Þó er ekki fjallað um leyfið í dómnum sem var kveðinn upp í dag.
Ekki vanhæfir vegna tengsla
Í niðurstöðukafla úrskurðar héraðsdóms segir að hinir ákærðu krefjist frávísunar málsins meðal annars vegna þess að málið hafi í raun verið rannsakað af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og starfsmönnum hans sem hafi verið vanhæfir sökum tengsla sinna við brotaþola, sem, líkt og fyrr hefur komið fram, er lögreglumaður sjálfur.
Þá segir að hvað þessa málsástæðu varði liggi fyrir að upphafsaðgerðir í málinu hafi verið unnar undir stjórn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, enda ekki ljóst í upphafi að brotaþoli væri lögreglumaður. Það liggi hins vegar fyrir að
héraðssaksóknari hafi tekið við stjórn rannsóknar málsins strax á fyrsta degi.
Að mati dómsins verði því ekki séð að nokkur þeirra rannsakenda sem hafi unnið að rannsókninni undir stjórn héraðssaksóknara hafi haft slík tengsl við brotaþola að það hafi valdið vanhæfi þeirra við rannsóknina. Sem fyrr segir neituðu allir sök í málinu en það er mat dómsins að þeir hafi framið brotið í sameiningu og beitt vítaverðri og hættulegri aðferð við verkið.
Mennirnir greiði en ekki ríkissjóður
Þá hlutu tveir hinna ákærðu átta mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm en sá þriðji sex mánaða dóm. Er þeim gert að greiða Verði tryggingum hf. óskipt 2.754.000 kr. með vöxtum og 600 þúsund krónur í málskostnað. Einkaréttarkröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu var vísað frá dómi en embættið krafðist þess að hinir ákærðu myndu greiða því samanlagt sem nemur um hálfri milljón króna auk vaxta og dráttarvaxta.
Mennirnir þrír greiði málsvarnarlaun skipuðum verjendum sínum á bilinu 2.600.000 til 2.800.000 en annar sakarkostnaður, að fjárhæð 1.566.942, verði greiddur óskiptur. Í fyrri úrskurði, frá því í nóvember 2025, segir að það athugist að víða í málsgögnum komi sama skjalið fyrir tvisvar eða jafnvel oftar og það sé til þess fallið að valda ruglingi.
Gögn málsins séu einnig sett upp með fremur óskipulegum hætti, sem geri þeim sem um málið þurfa að fjalla erfitt fyrir að átta sig á tímalínu þeirra aðgerða sem fóru fram.
„Er þetta að mati dómsins aðfinnsluvert.“
Í ljósi úrslita málsins falli allur sakarkostnaður á ríkissjóð. Hann felur í sér málsvarnarlaun þriggja verjenda ákærðu, alls 11,4 milljónir króna. Hann felur ekki sér annan kostnað við rekstur málsins, svo sem laun sækjanda eða rekstur dómstólsins. Þessum hluta úrskurðarins hefur greininlega verið breytt samanber kostnaði sem er útlistaður hér fyrir ofan.