Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Íkveikjan var framin árið 2023 og vakti mikinn óhug en ljóst var talið að hún tengdist störfum lögreglukonunnar og hefði verið ætluð til þess að ógna henni.Mennirnir eru allir með íslenskar kennitölur en af erlendum uppruna.
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu