Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031
Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglumenn að vera orðnir rúmlega 1000 talsins. Á sama tíma á að fjölga öðrum starfsmönnum embættanna um tæplega 100.
Lögreglan vill auka traustið sem nú þegar mælist mikið, úr 79,5 í 82%. Hlutfall menntaðra lögreglumanna á að fara úr 90 í 100%.
Þá á einnig að fara í aðgerðir til að koma í veg fyrir að lögreglumenn verði fyrir ofbeldi eða hótun í starfi. Í dag er hlutfallið 58% en á að fara undir 10%.
Þetta er einungis brot af þeim mælanlegu markmiðum sem sett eru fram í áætluninni.
Frekari fjárframlög ekki sett í verkefnið
Á sama tíma og áætlunin gerir ráð fyrir auknum mannafla er einnig bent á að safnast hafi upp umtalsverð innviðaskuld, svo sem í húsakosti. Til dæmis er víða ekki hægt að geyma ökutæki lögreglu innandyra, fangaklefar og aðstaða til þjálfunar eru víða ófullnægjandi sem og aðstaða til leitar í bílum við rannsókn sakamála.
Þá er í áætluninni að finna hugmyndir um aukna tæknigetu lögreglunnar. Allt þetta þarf að fjármagna.
„Ríkisstjórnin fór auðvitað í það í fyrra að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu, það var aðgerð upp á rúman milljarð. Það var varanleg fjárfesting. Núna erum við auðvitað í þeim fasa að reyna að ná fram hallalausum fjárlögum þannig að það voru ekki frekari fjárframlög inn í þetta verkefni,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
„En ég er auðvitað óþreytandi að tala fyrir því að hér þurfi að gera betur.“
Þannig að þú ert í raun að segja að það sé ekkert líklegt að markmið þessarar áætlunar náist?
„Markmiðin liggja fyrir og eru ekki bundin við þessa tilteknu tölu heldur við ákveðin verkefni sem lögregla er þá þegar að sinna. Þannig að þessi markmið eru mjög raunhæf. Þarna eru mjög mælanlegir mælikvarðar um hvar við erum stödd í dag, hvar við viljum vera studd í fimm ár, byggt á gögnum.“