Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátindi sínum á sjöunda áratugnum þegar það seldist í meira en átta milljónum eintaka í hverri viku.
Spennt að deila með fleirum
Þá var greint frá því í morgun að blaðið myndi snúa aftur og yrði gefið út enn á ný frá og með 23. nóvember næstkomandi. Er það ofurfyrirsætan og frumkvöðullinn Karlie Kloss sem stendur að endurræsingunni í gegnum fyrirtæki sitt Bedford Media, sem keypti réttinn að Life árið 2024, eftir því sem fram kemur í umfjöllun The New York Times um tímamótin.
„Fyrir ykkur sem hafið elskað Life í mörg ár, og ykkur sem eruð að uppgötva það í fyrsta sinn, erum við spennt að sýna ykkur hvað er í vændum,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem Times hefur undir höndum.
Fyrsta tölublaðið skartar þemanu „Hvar stöndum við nú?“, og samkvæmt Times mun það veita „innsýn í Ameríku í leit að merkingu: vísindamenn og listamenn, frumkvöðla og íþróttafólk, börn og áttræðinga, kolanámumenn og drónasmiði“.
„Það sem gerði Life einstakt var hæfni þess til að láta heiminn virðast nær,“ segir Kloss við Times „og ábyrgð okkar er að varðveita og vernda þá arfleifð.“
Færa út kvíarnar
Hún segir einnig að áform séu uppi um að færa út kvíarnar yfir á samfélagsmiðla, vefsíðu, stutt myndbönd og heimildarmyndir. Fyrsta tölublaðið verði 250 blaðsíðna rit í stóru broti sem mun kosta 45 dali, eða um 5.500 íslenskar krónur.
Kloss, sem er gift Joshua Kushner, einum eigenda Bedford Media og bróður Jareds Kushner, tengdasonar Trumps forseta, keypti áður tískutímaritið i-D og endurræsti það í fyrra. Hún á einnig hlut í tímaritinu W en í viðtali við Times sagði hún að þau ætli að vanda sig og leggja áherslu á að ná mælanlegum árangri í átt að arðsemi frekar en að flýta sér um of.
Líkt og fyrr segir var blaðið gríðarlega vinsælt á sínum tíma og í því voru birtar myndir sem teknar voru á meðan síðari heimsstyrjöldin geisaði, geimkapphlaupið var háð og réttindabarátta ýmissa hópa náði hápunkti. Tímaritið birti verk ljósmyndara á borð við Robert Capa, Alfred Eisenstaedt og Gordon Parks.