Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu árum.
Guðmundur Fylkisson lögreglumaður sem vel þekkir til barna í þessum hópi segir fátt hafa komið sér á óvart í þættinum.
„Þetta er grein sem hefur vaxið mjög hratt og það er ástæða fyrir því,“ segir Guðmundur.
Hver er hún? „Þörfin á úrræðunum fyrir þessa einstaklinga.“
Aðalstarf Guðmundar er að leita að týndum börnum og ungmennum - meðal annars þeim sem dvelja í búsetuúrræðunum.
„Sum þeirra glíma við fíknina sem er til viðbótar ofan á annað. Önnur eru kannski í miklum hegðunarvanda og eru kannski ósátt við þær hömlur sem þau þurfa að búa við vegna þeirra öryggis og annarra.“
Leitarðu að barni úr svona búsetuúrræði til dæmis í hverjum mánuði? „Já, ég held ég geti sagt það.“
Sumir þurfa helst öryggisúrræði
Í þættinum kom fram að fáir starfsmenn úrræðanna væru fagmenntaðir. Guðmundur segir misjafnt eftir aðstæðum barna hvers konar starfsfólki sé þörf á. „Krakkarnir sem ég er að leita að þurfa faktískt séð öryggisúrræði. Þegar þú ert með einstakling sem er með 2-3 starfsmenn allan sólarhringinn; hann er ekki í einhverri faglegri þjónustu 24 tíma. Stærsti hluti starfsmannanna er til að tryggja öryggi þeirra og annarra.“
Sparnaður gæti reynst dýr í framtíðinni
Þjónusta við börn með fjölþættan vanda færist alfarið yfir til ríkisins um áramótin og að mati Guðmundar þarf að stíga varlega til jarðar.
„Væntanlega eru allir að leita að einhverjum leiðum til hagræðingar og sparnaðar hjá hverju sveitarfélagi. Það þarf að herða sultarólina þar líka. En það má ekki vera á kostnað þessa, það verður dýrt í framtíðinni.“