Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu átaki og draga verður úr notkun olíu hér á landi.
Þetta kom fram á loftslagsdeginum í dag sem er fyrsti vottaði svansviðburðurinn sem haldinn er hér.
Losun frá landbúnaði meiri á Íslandi en í löndum ESB
Fjölmenni sat árlegan loftslagsdag í Hörpu í dag þar sem þemað var loftslagsbreytingar og öryggi. Fjallað var um loftslagsbreytingar frá ólíkum sjónarhornum og stöðu losunarbókhalds.
Í ljós kemur að losun hér á landi, til dæmis frá landbúnaði, landnotkun og fiskiskipum, er miklu meiri en í löndum ESB.
Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun, segir stöðuna hér á landi ekki góða.
„Hún er kannski tvíþætt, ef við berum okkur saman við ríki á meginlandi Evrópu þá er losun gróðurhúsalofttegunda á mann hér töluvert meiri og líka ef við skoðum innlend markmið þá er ennþá með allavega sum þeirra töluvert langt í land að við munum ná þeim.“
Sumt gangi hins vegar vel og losun hafi ekki aukist í samræmi við stækkun hagkerfisins. En á heildina sé enn langt í land.
„Það gerist ekki nema með samstilltu átaki, við þurfum að draga úr notkun olíu hér innan lands og það er ekki bara umhverfismál, það er öryggismál,“ segir Birgir.
Fyrsti svansvottaði viðburðurinn hér á landi
Þá var fjallað um orkuöryggi í óvissum heimi sem er háð alþjóðlegum samningum, mörkuðum, flutningi og viðskiptavinum.
„Ég tel að við þekkjum stöðuna og við erum forvitin um hvernig hún gæti orðið og bregðumst við með þeim hætti og erum bara svolítið sveigjanleg og seig að þá séum við bara í góðum málum,“ segir Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður hjá Landsvirkjun.
„Við Íslendingar erum vön alls konar náttúruhamförum en við þurfum að standa í lappirnar og þetta er raunveruleg ógn, loftslagsbreytingar, um allan heim og það magnar óvissu í alþjóðamálum sem við sjáum.“
Loftslagsdagurinn í dag er fyrsti svansvottaði viðburðurinn hér á landi. Vottunin staðfestir að fundurinn uppfyllir kröfur um umhverfismál og sjálfbærni.
„Við erum að horfa á orkunotkunina, við erum að skoða hvaða matvæli og hvaða veitingar eru í boði og úrgangsflokkunina auðvitað og svo samgöngur til og frá ráðstefnustaðnum,“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.