Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögreglunnar. Grímur leiddi stýrihóp sem var settur saman af dómsmálaráðuneytinu til að vinna að löggæsluáætlun fyrir árin 2027 til 2031.
Áætlunin var kynnt á kynningarfundi í dag en í henni er farið um víðan völl. Þar á meðal er að taka skipulagða glæpastarfsemi fastari tökum, fjölga lögreglumönnum til að mæta nýjum áskorunum og margt fleira. Grímur segir áætlunina löngu tímabæra enda rann sú síðasta sitt skeið árið 2023.
„Það er mikilvægt að við séum með áætlun. Vinnan snýst líka um að móta stefnu fyrir lögregluna sem er öðruvísi en hefur verið.“
Meirihluti lögreglumanna verði fyrir ofbeldi á einu ári
Í áætluninni kemur meðal annars fram að 58 prósent lögreglumanna hafi orðið fyrir ofbeldi eða hótunum síðustu tólf mánuði. Grímur telur ekki að mikil breyting hafi orðið á því síðan hann sagði skilið við lögregluna undir árslok 2024.
„Það eru viss embætti, sérstaklega, sem upplifa aukningu í þessu. Það er auðvitað áhyggjuefni að það sé fólk komið út um allt land og ekki bara á höfuðborgarsvæðinu sem leyfir sér svona framkomu gagnvart lögreglu. Mér finnst það alvarlegt og mér finnst þurfa að taka á því.“
Að hans mati sé mikilvægt, eftir atvikum, að breyta lögum eða auka heimildir til sektagerða gagnvart þeim sem beita lögreglu ofbeldi. Grímur segist sjálfur ekki hafa óttast um öryggi sitt á sínum tíma innan lögreglunnar.
„Ég lenti samt í atviki þar sem bíllinn minn var skemmdur fyrir utan heima hjá mér. Það sem gerist við svona lagað, bæði þegar eitthvað er skemmt eða manni er hótað, þá eru aðrir í kringum mann. Það er fjölskyldan. Ég hef upplifað það að hafa brugðist öðruvísi við eftir þetta atvik en ég hefði gert fyrir. Ég er ekki beint að segja að ég hafi upplifað hræðslu.“
Hvernig brástu öðruvísi við?
„Þetta var heima hjá mér og það var maður sem kom í myndavél hjá mér og ég áttaði mig ekki á því hvað hann var að gera. Ég fylgdi því eftir, hans erindi reyndist síðan ansi venjulegt. Maður var bara með þennan vara á sér og maður á öðru viðvörunarstigi.“
Það sé mikilvægt að tryggja að lögreglumenn upplifi öryggi í starfi, sérstaklega til að ná þeirri aukningu lögreglumanna sem stefnt er að.
Þurfi að skilgreina hlutverk lögreglunnar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra boðaði breytingar á lögum til að liðka fyrir baráttu lögreglunnar gegn skipulagðri brotastarfsemi. Grímur fagnar því skrefi.
„Við þurfum að breyta skipulagi, sérstaklega þegar kemur að skipulagðri brotastarfsemi. Við erum að dreifa kröftunum of víða. Við erum í mörgum embættum og við erum líka innan hvers embættis ekki á sama stað sem vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Það þarf að skoða heimildir lögreglunnar.“
Að mati Gríms er mikilvægt að skoða hlutverk lögreglunnar í ljósi þess að herlið er ekki til staðar hér á landi.
„Í nágrannalöndum okkar hafa herir tiltekin hlutverk. Síðan er lögreglan með annað hlutverk. Það þarf að skilgreina hvert hlutverk lögreglunnar er hér á landi. Mér finnst það mjög mikilvægt, sérstaklega varðandi fjölþáttaógnir. Þegar up er staðið og ef það yrði eitthvað sem þyrfti að taka á þá væri það hlutverk lögreglunnar. Það er engu öðru að dreifa í því.“