Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldur.Hann segir að eins árs börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir aðskilnaði frá foreldrum sínum og er gagnrýninn á þá þróun að sífellt yngri börn verji stórum hluta dagsins á leikskólum.Vegard Bruun Wyller, 54 ára barnalæknir við Ahus-sjúkrahúsið og prófessor við Háskólann í Ósló, og eiginkona hans, Hedda Bratholm Wyller, 41 árs sálfræðingur, ræða málið í viðtali við norska dagblaðið VG.
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla