„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski forsetaframbjóðandinn Flavio Bolsonaro við fjölmiðla vestanhafs í dag.
Brasilíski forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro er flúinn úr landi eftir að hafa beðið ósigur í forsetakosningunum á sunnudag. Bolsonaro sætir rannsókn fyrir spillingu og peningaþvætti. Dómsúrskurður var kveðinn upp að loknum kosningum sem meinaði honum að yfirgefa Brasilíu og var honum jafnframt gert að skila inn vegabréfi sínu. Áður en til þess kom var hann flúinn ásamt eiginkonu sinni og tveimur dætrum.
Forsetinn Luiz Inácio Lula da Silva sigraði í kosningunum með 51,8 prósent atkvæða og situr því áfram sem forseti landsins. Hann sagði brotthvarf Bolsonaro skammarlegt.
Bolsonaro fór fyrst til Argentínu og þaðan með einkaflugvél til Ekvadors. Hann lenti loks í Flórída í Bandaríkjunum nú síðdegis. Trump hefur veitt fjölskyldunni leyfi til að dvelja þar. Bolsonaro segist ætla að leiða stjórnarandstöðuna frá Bandaríkjunum þar sem hann ætlar að dvelja í sjálfskipaðri útlegð.