Greint var frá því í kvöld að þætti Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefði verið kippt út af vef Ríkisútvarpsins tímabundið. Ritstjórinn sagði við Vísi að breyta hefði þurft myndefni í þættinum.
Nú greinir Ríkisútvarpið frá því að um hafi verið að ræða stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar sem birst hafði í þættinum. Myndefnið hafi verið tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúrsins, sem rekur meðal annars búsetuúrræði fyrir börn.
Ríkismiðillinn áréttar að Gullkylfan tengist ekki umræddu búsetuúrræði og myndbrotið hafi því verið fjarlægt úr þættinum.
Þátturinn vakti mikla athygli í gær og því vakti það sömuleiðis athygli þegar þátturinn hvarf í kvöld. Miklar umræður spunnust á Facebook-hópnum BeautyTips um fjarveru þáttarins af vef ríkismiðilsins.