Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunni við verðbólgu þar í landi.
Vextir hafa verið óbreyttir frá því í september en í yfirlýsingu bankans kom fram að verðbólga væri enn mikil. Reuters greinir frá því að gefið hafi verið í skyn að frekari hækkanir gætu þó komið ef verðbólga lækki ekki.
Tíu greiddu atkvæði með því að halda vöxtum óbreyttum á meðan tveir nefndarmenn greiddu atkvæði með stýrivaxtahækkun. Í hópi þeirra síðarnefndu var Lisa D. Cook, sem Trump hefur ítrekað reynt að reka.
Kevin Warsh seðlabankastjóri svaraði aðspurður á blaðamannafundi í dag að komandi þingkosningar 3. nóvember hefðu ekkert með ákvörðunina að gera.
Þrátt fyrir verðhækkanir, einkum í tengslum við lokun Hormússund og tollastríð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hefur hagvöxtur þó aukist í Bandaríkjunum síðustu misseri og er það að hluta rakið til aukinnar fjárfestingar í gervigreind.
Engu að síður hefur lánakostnaður ríkissjóðs aukist verulega jafnframt sem ákveðin gervigreindarfyrirtæki hafa safnað miklum skuldum, að því er New York Times greinir frá. Þá hafi launahækkanir ekki haldið í við hækkandi verðlag.
Bandaríkjaforseti hefur ekki brugðist við ákvörðuninni en vænta má þess að hann sé ekki sáttur þar sem hann brást ókvæða við þegar stýrivextir voru hækkaðir í september, þá í fyrsta sinn í þrjú ár.
Trump skipaði Warsh stjórnarformann í maí á þessu ári eftir að kjörtímabili forvera hans, Jeorome H. Powell, lauk.