Leitaraðgerðir fóru fram á vettvangi í Grindavík í gær og voru á ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fyrir lá ítarlegt áhættumat í fjórum þáttum en aðgerðirnar í gær voru samkvæmt fyrsta áfanga þess sem byggði á sjónleit sigmanna og leit með rústamyndavélum án þess að jarðvegi væri raskað.
Aðgerðirnar of áhættusamar
Í tilkynningu lögreglu segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fóru meðal annars tveir sigmenn niður í sprunguna. Fundust engar vísbendingar sem gætu varpað ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks væri að finna og segir í tilkynningu að með því sé þeim aðgerðum lokið sem lögreglustjóri telji mögulegt að ráðast í á grundveli áhættumats, aðrar aðgerðir þyki of áhættusamar.
Sjá einnig: Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið
Lögreglustjóri Suðurnesja, Margrét Kristín Pálsdóttir, vildi ekki tjá sig frekar um leitaraðgerðir þegar fréttastofa náði tali af henni í morgun og vísaði í áðurnefnda tilkynningu en samkvæmt heimildum fréttastofu var meðal annars leitað í vatni en frekari leit myndi krefjast töluverðra jarðvegsframkvæmda.
Bærinn ráði framhaldinu
Ákvörðun um framhald í málinu er nú hjá Grindavíkurbæ en svæðið við sprunguna er á forræði bæjarins. Samkvæmt heimildum hefur ekki verið tekin ákvörðun um næstu skref, ný staða sé komin upp og hana þurfi að meta. Svæðið er afgirt og krefst töluverðrar vinnu þar til að það geti talist öruggt.
Þá eru fimm enn með stöðu sakbornings í tengslum við slysið fyrir tæpum þremur árum. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að málið væri enn til meðferðar hjá ákæranda og væri til vinnslu þessa dagana.