Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Þegar ráðningasambandi við vinnuveitenda lýkur losnar um málbeinið. Engin hætta er á að lífsviðurværið sé tekið, þó svo kennari í Síðuskóla hafi óskað eftir slíku, vegna skoðanaágreinings.
Má ég kynna Selmu Gamaleldin. Grein og fréttir um hana ráku á fjörur greinarhöfundar sem þótti efnið áhugavert, en olli ugg. Gat þetta verið. Í alvöru. Eru skólar og stjórnendur svo langt leiddir.
Greinarhöfundur bloggaði um Selmu 7. febrúar 2024.
Lesa má á bloggsíðunni:
,,Hún var kennari. Foreldrar 7 ára drengs sem skilgreindi sig (eða foreldrarnir skilgreindu) annað en stelpu eða strák og fóru fram á að hún notaði fornafn trans-hugmyndafræðinnar. Selma var ekki á því enda stríðir það gegn trú hennar og lífsgildum. Hún sagðist tilbúin að nota nafn barnsins í stað trans-fornafns.
Vert er að taka fram, það ber engum skylda til að nota fornöfn eða nafngiftir trans hreyfinga.
Foreldrarnir létu ekki laust við fast fyrr en Selma var rekin frá skólanum þar sem hún starfaði. Hennar lífsgildi og trú voru einskins virði í augum stjórnanda og foreldra drengsins. Trans-hugmyndafræðin valtaði yfir hana.
Skólastjórinn hugsaði ekki um önnur börn sem vildu ekki missa hana. Sérlundaðir foreldrar tóku ákvörðun sem aðrir þurftu að beygja sig eftir og hin börnin misstu kennarann sinn.
REKIN fyrir að fylgja lífskoðun sinni og gildum.
REKIN fyrir að vilja nota nafn barns ekki trans-fornafn 7 ára drengs.
Hugrakkar manneskjur er þáttur í Svíþjóð og að sjálfsögðu var Selma boðuð þangað, enda hugrökk fram í fingurgóma.
Hvert eru við komin þegar skólastjórnendur grípa til þessa ráðs. Hvert eru við komin þegar trans-hugmyndfræðin ræður ríkjum á þennan hátt. Vonandi höfum við lært eitthvað og að árið 2024 kunnum við að virða skoðanir fólks og lífsgildi þó þau fari ekki saman við okkar eigin. Það sem Selma gerði er ekki brottrekstrarsök.
Um er að ræða hugmyndafræði kristinnar trúar annars vegar og hins vegar trans- hugmyndafræðinnar. Hvorug hugmyndafræðin er hinni merkilegri ef maður á að skoða það hlutlaust. Hvað veldur að hugmyndafræðin sem Selma lifir eftir er fótum troðin vegna trans-hugmyndafræðinnar?
Vonandi er þetta liðin tíð en Selma var rekin frá skólanum árið 2021.
Kennarasamband Íslands með Magnús Þór Jónsson og Félag grunnskólakennara með Mjöll Matthíasdóttur í fararbroddi myndu aldrei verja kennara á Íslandi myndi þetta gerast hér á landi. Dreg þá ályktun því þau hafa bæði sýnt í orðum og gjörðum að þau aðhyllast trans hugmyndafræðina hvað sem það kostar.“
Þetta er skrifað í byrjun febrúar 2024 en síðar koma hið ótrúlega í ljós.
Síðuskóli og Félag grunnskólakennara
Það átti eftir að renna upp fyrir greinarhöfundi að íslenskur skólastjórnandi og kennarar í Síðuskóla högðuðu sér á sama hátt og sænskir kollegar þeirra, eftir að Morgunblaðsgreinin birtist nokkrum mánuðum eftir bloggfærsluna um Selmu. Trans hugmyndafræðin lagði allt undir sig.
Skólastjórinn rak ekki greinarhöfund þó hann í ,,ráðgefandi samtali“ hafi spurt hvernig hann sæi fyrir sér að koma aftur í skólann eftir Morgunblaðsgreinina. En Heiða Björg Guðjónsdóttir kennari vildi gjarnan reka samkennara og vonaði að fleiri gerðu slíkt hið sama, sagði hún á síðunni sinni.
Nei þessir starfsmenn Síðuskóla hröktu kennara í Síðuskóla í langt veikindaleyfi með hegðun sem flokkast undir einelti. Allt vegna skoðanaágreinings, en greinarhöfundur heldur fram sannleikanum um líffræðina, staðreyndum, vísindum og hafnar að til séu fleiri en tvö kyn. Ákveðnir starfsmenn Síðuskóla hafna tvíkynjahyggjunni og telja trans hugmyndafræðina vera hið besta mál og sýndu mátt sinn og megin.
Selmu var sagt upp, kennaranum á Akureyri var ýtt út í veikindaleyfi sem endaði í starfslokum. Báðar fyrir það sama, að halda sig fast við tvö kyn. Það eiga þessir kennarar sameiginlegt.
Selma og greinarhöfundur eiga það líka sameiginlegt að skólastjórarnir vildu breyta hugsunarhætti kennarana og afstöðu þeirra til trans hugmyndafræðinnar. Greinarhöfundi með ráðgefandi samtali með skólastjóra og mannauðsstjóra Akureyrarbæjar. Leyfum Selmu að segja frá sinni upplifun:
,,Skolledningen ville ”ändra mina tankar”
Det hela kulminerade i januari 2021. Då kallade skolledningen in hela personalen till ett möte där de berättade att de hade tagit fram en ny policy. Där stod att personalen hädanefter måste använda det pronomen som föräldrarna eller barnet önskar.
– Under mötet rycker en av mina kolleger ut till mitt försvar och säger att fackförbundet menar att skolan inte har rätt att kräva detta av en lärare. Men då säger Peter Friemann, skolchefen, att facket inte vet vad de talar om. Han menade att det utgör diskriminering att inte följa denna policy eftersom det står så hos Diskrimineringsombudsmannen.
Efter mötet blev Selma Gamaleldin kallad till ett enskilt möte, en form av förhör, med fem personer ur skolledningen i ett litet rum på skolan. Hon berättar att hon upplevde mötet som mycket otäckt, men kunde inte där och då förstå varför.”
Vegna eineltishegðunar starfsmanna Síðuskóla var ekki hægt að leita til Félags grunnskólakennara (FG) um aðstoð. Félagið gaf út yfirlýsingu að það styddi trans hugmyndafræðina og bæði Mjöll Matthíasdóttir formaður félagsins og Anna Guðrún Jóhannesdóttir varaformaður og starfsmaður FG hafa því vísað kennurum á bug með eineltisvanda vegna trans umræðu. Kennurum sem borga himinhá félagsgjöld til félagsins. Kennurum sem héldu að félagið stæði með þeim og ynni fyrir þá. Nei hugmyndafræði skal það ver heillin, sem byggir á ímyndun, upplifun einstaklinga og draumum, ekki staðreyndum, ekki vísindum og hvað þá líffræðinni.
Vekur vissulega upp spurningar um verksvið stéttarfélaga.
Höfundur er kennari.