Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi í kosningunum sem haldnar voru í Ísrael í gær.
Þegar búið er að telja yfir 85 prósent atkvæða er ljóst að hvorug meginfylkingin í ísraelskum stjórnmálum mun ná hreinum meirihluta. Afar litlu munar á fylgi þeirra en hægri blokkin, sem Benjamin Netanyahu leiðir, hefur þó eilítið forskot á stjórnarandstöðuna, þar sem Gadi Eisenkot er forsætisráðherraefni.
„Ég myndi kannski segja að það sem kemur mest á óvart núna er að Netanjahú tapaði ekki stórt og þetta var eiginlega svona, aðstæður gátu í raun og veru ekki verið betri fyrir andstæðinga hans.“
Þess vegna segir Magnús að Netanjahú standi uppi sem ákveðinn sigurvegari og það sé eiginlega með ólíkindum að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi. Hann stóð í brúnni þegar Hamas gerði mannskæðustu hryðjuverkaárás í sögu Ísraels 7. október.
„Það kannski sýnir bara óvissuna að Ísraelar vildu ekkert endilega hafa Netanjahú en þeim leist ekki nægilega vel á þessa valkosti sem voru til staðar og þetta er bara til marks um kannski ákveðna tilvistarkreppu í Ísrael og þeir vita í raun og veru ekki hvert þeir eiga að líta.“
Kjörsókn Araba jókst um 50% frá fyrri kosningum
Annað sem vakti athygli er aukin kjörsókn Araba sem búa í Ísrael. Hún var um 80% og jókst um 50% frá síðustu kosningum.
„Sem er um 20% af þjóðinni, þetta er tiltölulega stór minnihluti, þetta er kannski svo á íslenskan mælikvarða um 80 þúsund manns á Íslandi.“
Magnús segir að þessi hópur hafi oft litið hornauga á að taka þátt í hinu pólitíska starfi vegna þess að þá álíti hann að verið sé að vinna með óvininum og því sé betra að halda sig utan kerfisins. Það hafi breyst upp úr 2020 og slíkur flokkur hafi nú reynslu af því að vera í ríkisstjórn, það hefur gerst einu sinni árið 2021.
„Þeir vita að þeir munu ekki fá voldugt ráðherraembætti en þau gætu kannski hjálpað til við að stýra ákveðnum fjármunum til þeirra og breyta kannski aðeins um áherslur í öryggismálum.“
Hægt er að nálgast lengra viðtal við Magnús hér í spilaranum fyrir neðan.