Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fundið nýjan takt og nýjan tilgang í nýrri hljómsveit. Í viðtali við Vísi fyrr á árinu sögðust þær búa til tónlist sem er heiðarleg.
Í tilkynningu segir að myndbandið sé ferðalag inn í virkilega súrrealískan veruleika. Karakterar myndbandsins séu hver öðrum undarlegri, en meðal þeirra sem koma fram í vídeóinu eru leikkonan Íris Tanja Flygenring og dansarinn Luis Lucas.
„Karakterarnir eru ef til vill birtingarmynd einhvers sem býr innra með okkur öllum, sérstaklega þegar lífið bara virðist ekki ætla að ganga upp,“ segir Elín í tilkynningunni.
Zöe tekur undir og segir: „Það fjallar um baráttuna við að gera allt sem í þínu valdi stendur til að láta hlutina ganga upp, en klúðra öllu aftur og aftur.“
Breiðskífa væntanleg
Breiðskífa er væntanleg frá hljómsveitinni en auk þess munu þær taka upp EP-plötu í janúar 2027 með óútgefnu efni í hinu Real World Studios, hljóðveri Peters Gabriel, með Grammy-verðlaunahafanum Katie May sem upptökustjóra og hljóðmanni.
Hljómsveitin kemur fram í Fríkirkjunni í Reykjavík á Iceland Airwaves í ár, 5. nóvember kl. 21:50. Fyrir tónleikana hafa Elín og Zoe sett saman sex manna hljómsveit.