Sveinn fæddist í Reykjavík 4. maí 1938. Foreldrar hans voru Eyjólfur Sveinsson (1909-1945) og Kristín Bjarnadóttir (1915-2005).
Sveinn varð stúdent frá Verslunarskóla Íslands árið 1958. Árið 1961 réðst hann til olíufélagsins Skeljungs. Þar var hann fyrst aðstoðarsölustjóri en síðar sölustjóri yfir öllum sölustöðum félagsins um allt land.
Árið 1968 var Sveinn ráðinn framkvæmdastjóri dagblaðsins Vísis. Hans fyrsta verk þar var að afþakka ríkisstyrk sem blaðið naut. Í samstarfi við Jónas Kristjánsson ritstjóra sneri hann rekstrinum til betri vegar. Þegar Jónasi var vikið úr ritstjórastóli árið 1975 ákvað Sveinn að fylgja honum og saman stofnuðu þeir Dagblaðið, sem kom fyrst út 8. september 1975.
Dagblaðið og Vísir sameinuðust í DV árið 1981. Sveinn var stjórnarformaður og útgáfustjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, sem gaf blaðið út. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri var Hörður Einarsson, viðskiptafélagi Sveins um árabil. Sveinn varð síðar aðaleigandi félagsins.
Í verkfalli opinberra starfsmanna haustið 1984 stóð DV fyrir útsendingum Fréttaútvarpsins og átti þar með þátt í að rjúfa einokun ríkisins á útvarpsrekstri. Sveini var hugleikið að losa um fjötra í viðskiptalífinu og hann var afar mótfallinn einokun. Hann sat í stjórn Hafskips og gekk til liðs við Arnarflug til að efla samkeppni í flutningum til og frá landinu.
Sveinn kom einnig að uppbyggingu og verktakastarfsemi með ýmsum hætti og var meðal annars um tíma varaformaður stjórnar Íslenskra aðalverktaka. Árið 1966 stofnaði hann byggingafélagið Ármannsfell ásamt Ármanni Guðmundssyni byggingameistara. Hann var stjórnarformaður félagsins fyrstu árin og aftur frá 1997. Þá samdi hann við eigendur og ábúendur Blikastaða í Mosfellsbæ um kaup á jörðinni. Hann handsalaði kaupin og sá til þess að þau gengju eftir. Þar er nú eitt vænlegasta uppbyggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins.
Með Eyjólfi syni sínum stofnaði hann vefmiðilinn Vísi árið 1998 og Fréttablaðið árið 2001. Fréttablaðið olli byltingu á íslenskum fjölmiðlamarkaði og var dreift ókeypis í hús. Það kom út í 22 ár og var lengst af stærsta dagblað landsins. Vísir er mest lesni fréttamiðill landsins í dag.
Frjáls fjölmiðlun hætti starfsemi árið 2002 og Sveinn gerði upp allar ábyrgðir sínar á næstu árum. Þegar Sveinn hvarf frá störfum við fjölmiðla sneri hann sér að verslunarrekstri og fasteignaþróun.
Sveinn og Auður eiginkona hans unnu landinu og stunduðu ræktun og uppbyggingu víða. Á Leirubakka í Landsveit byggðu þau upp gistihús, reiðhöll og Heklusetur. Á Efra Nesi í Stafholtstungum stunduðu þau hrossarækt í tuttugu ár. Þau ferðuðust víða um hálendið á hestum og sóttu leikhús alla tíð.
Dagblaðasafn Sveins, það stærsta á landinu, komst í eigu Landsbókasafns árið 2006. Árið 2017 kom út æsku- og athafnasaga hans, Allt kann sá er bíða kann, sem Silja Aðalsteinsdóttir skráði. Árið 2024 hlaut hann gullmerki Heimdallar fyrir baráttu sína fyrir frjálsri fjölmiðlun.
Sveinn var hlédrægur um eigin hag og veitti fá viðtöl. Í lok ævisögu sinnar sagði hann:
„Þegar upp er staðið er ég fyllilega sáttur við þá vegferð sem ég valdi mér, og það leiðarljós að vera engum háður og láta engan eiga neitt hjá mér.“
Eftirlifandi eiginkona Sveins er Auður Eydal, f. 1938. Börn þeirra eru Hrafnhildur, f. 1958, Eyjólfur, f. 1964, Hlédís, f. 1965, Sveinn Friðrik, f. 1974, og Halldór Tinni, f. 1978. Barnabörnin eru ellefu.
Útför Sveins verður frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. nóvember kl. 13.
Upphaf Vísis með augum Sveins
Áður var getið þegar Sveinn kom að stofnun vefmiðilsins Vísis, þess sama og þú lesandi góður ert að lesa, árið 1998. Sveinn fjallaði um tilurð Vísis í ævisögu sinni og er ekki úr vegi að birta hluta af þeirri umfjöllun hér að neðan.
Visir.is – fyrsti íslenski netmiðillinn
1995 urðu miklar breytingar í margmiðlun í heiminum. Árið áður var vefgáttin Yahoo stofnuð og menn fóru smátt og smátt að gera sér grein fyrir þeim breytingum sem internetið myndi hafa í för með sér. En eins og alltaf er með slíkar nýjungar þá var það sem augljóst er eftir á hreint ekki svo augljóst þegar það var að gerast. Enn voru þrjú ár þangað til bandaríska tölvufyrirtækið Google var stofnað og fá fjölmiðlafyrirtæki í Evrópu voru farin að huga að þessum málum í einhverri alvöru.
Við feðgar sáum í þessu eintóm tækifæri. Eyjólfur var með sýn og sambönd í margmiðlunar- og Internetmálum eftir verkfræðinám við Columbia háskóla í New York og var hugmyndafræðingurinn á bak við stefnu okkar. Við ákváðum að keyra hart inn á þennan geira og notuðum til þess fjárfestingar og samstarf við fjölmörg sprotafyrirtæki sem gerði okkur kleift að prófa mun fleira en ef við hefðum reynt að gera allt einir. Eyjólfur settist í stjórn ýmissa stórra tæknifyrirtækja, svo sem Nýherja og Skýrr, og við keyptum okkur inn í nokkur smærri, svo sem Gagnamiðlun, Leit.is og Fjarhönnun.
Á árinu 1996 fór myndin að skýrast. Við ákváðum að stofna öflugan fjölmiðil á netinu og samnýta sem allra mest þær ritstjórnir sem við rákum. Fyrst og fremst höfðum við í huga DV en einnig Viðskiptablaðið, Dag og jafnvel samstarf við ljósvakamiðil. Einhversstaðar varð að byrja en ennþá höfðu fáir aðilar á landinu þekkingu á þessu sviði. Við keyptum helming í einu sprækasta internetfyrirtækinu, Skímu, og skömmu seinna sameinuðum við það öðru öflugu internetfyrirtæki, Miðheimum. Þetta sameinaða fyrirtæki, sem hélt nafni Skímu, reyndist hinn mesti happafengur. Við fluttum það til okkar í gamlan netagerðarsal í Hampiðjuhúsunum og hófum sókn á nýjum sviðum.
Þar með vorum við orðnir stærsti hluthafinn í stærstu netveitu landsins. Enn mikilvægara var að þar innanborðs voru færustu sérfræðingar í margmiðlun og vefsmíði. Sumir af þeim sérfræðingum fluttust yfir til okkar og störfuðu með okkur í mörg ár við tækniuppbyggingu og þróun. Og við biðum ekki boðanna en hófum starfsemi á netinu, fyrst með íþróttir og smáauglýsingar og víkkuðum það svo smátt og smátt út.
Þetta var á frumdögum internetsins og ekki voru mörg heimili með tölvur og internettengingu. Við vissum að þetta myndi breytast fljótlega en til að flýta fyrir réðumst við í mikla markaðsherferð fyrir jólin 1997 þar sem við buðum heimsendingu á uppsettum tölvum með internettengingu á mjög hagstæðu verði. Fór svo að við vorum stærsti seljandi einkatölva þau jól. Við gátum ekki stillt okkur um að endurtaka leikinn ári seinna.
Netmiðlinum Vísi, visir.is, var svo hleypt af stokkunum, fullsköpuðum, í apríl 1998. Þar má segja að tilraunastarfseminni hafi lokið og við tók venjuleg starfsemi fjölmiðils þótt þessi væri á internetinu. Skíma hafði verið lykillinn að því hversu hagkvæmt þetta var allt saman en nú var komið að næsta stigi og við ákváðum að selja Skímu. Landssíminn og Norðurljós, undanfari 365 miðla, börðust um fenginn og fór svo að við seldum Landssímanum. Hagnaðurinn af sölunni borgaði stofnkostnaðinn af Vísi og gott betur.
Ári seinna, áður en internetbólan í Silicon Valley sprakk, kom sterkur fjárfestahópur banka og verðbréfafyrirtækja að máli við okkur og falaði hlut í Vísi. Úr varð að við seldum þeim um 20% á 200–300 milljónir. Nýttist það fé vel til frekari uppbyggingar og til að greiða upp í tapið á Degi. Um svipað leyti játuðu Norðurljósamenn sig sigraða á þessu sviði og sömdu við okkur um einkarétt okkar á öllu útvarps- og sjónvarpsefni þeirra og lögðu jafnframt niður sína internetsstarfsemi. Síðan hefur Vísir verið í sterkri stöðu á markaði og er í dag nýttur af yfir 60% allra landsmanna á hverjum degi. Ánægjulegt er að fjölskyldan hefur ennþá tengingu við miðilinn þar sem yngsti sonur okkar, Tinni, er einn stjórnenda hans.
Úr Allt kann sá er bíða kann, sem Silja Aðalsteinsdóttir skráði (Mál og menning, 2017).