Sveitarfélög á Norðurlandi eystra sjá tækifæri í stærri lögregluembættum, að því er segir í umsögn í samráðsgátt. Formaður þeirra segir aðalstöð embættisins eiga að vera á Akureyri.
Tryggja þarf að aukin stærð stjórnsýslueininga leiði ekki til að ákvarðanataka færist fjær samfélögum. Þetta segir í umsögn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra um frumvarp þar sem lagt er til að sameina lögregluembætti.
Þar segir líka að stjórnin sjái að tækifæri geti legið í stærri faglegum einingum, meðal annars til að byggja upp sérhæfð störf og verkefni á landsbyggðunum.
Heimir Örn Árnason, formaður SSNE, segir lykilatriði að samtökin styðji öflugri og faglegri lögreglu en vanda þurfi til verka. „Við höfum aðeins áhyggjur af fjarlægri stjórnsýslu og veikari þjónustu á landsbyggðinni,“ segir hann.
Í umsögninni er fjallað um mikilvægi þess að vanda til verka í svo stórum skipulagsbreytingum. Þá segir Heimir samtökin telja að meginþjónustan eigi að vera á Akureyri.
„Af hverju Akureyri? Við höfum sterkar forsendur vegna þess að þetta er náttúrulega svæðisborg með þjónustu- og samgöngumiðstöð. Þetta er alveg lykilstaður fyrir viðbragðsgetu á Norðurlandi,“ bætir hann við.
Dómsmálaráðherra sagði í viðtal við fréttastofu í gær að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvar lögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar verði staddir.
Heimir tekur fram að nýja skipulagið eigi að efla landsbyggðina en ekki safna yfirstjórn og sérhæfingu á fáa staði. Tryggja þurfi viðbragðsgetu á svæðinu öllu. Á Þórshöfn hefur dregið úr löggæslu eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu.
Síðsumars kom fram í fréttum að einn maður sinnir löggæslu á Húsavík og Þórshöfn. Á milli bæjanna eru 150 kílómetrar.
„Það er náttúrulega mjög miklar fjarlægðir þaðan og Langanesbyggð hefur haft áhyggjur af þessu lengi,“ segir Heimir.
Heimir bendir á að SSNE eru í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélögin og hann vonast til að dómsmálaráðuneytið taki allar umsagnir til skoðunar.
„Við tökum fram að við höfum alveg trú á þessu, þannig að við erum bara að vona að þetta verði gert vel.“