Reykjavíkurborg hefur ákveðið að reka 50 starfsmenn á fimm sviðum og tveimur skrifstofum í dag. Þremur þeirra verða boðin önnur laus störf. Þetta kemur fram í tilkynningu.Allt í allt verður stöðugildum fækkað um rétt tæp 74, fimmtíu starfsmönnum verður sagt upp með beinum hætti en fækkunin mun að öðru leyti koma til vegna starfsmannaveltu, tímabundinna starfa og stöðvunar ráðningar. Starfsfólki sem missir vinnuna býðst að sækja sér sálfræðihjálp og aðstoð við atvinnuleit í gegnum ráðningastofu.
Niðurskurðarhnífurinn á lofti hjá borginni - 50 reknir og boðin sálfræðiaðstoð