Íranski fjölmiðillinn Emtedad News Agency greinir frá dómnum sem er fimm ára og eins mánaðar langur en Panahi átti þegar yfir höfði sér eins árs fangelsisvist.
Mostafa Nili, lögfræðingur Panahi, greindi fjölmiðlinum frá því að leikstjórinn hefði hvorki verið viðstaddur né meðvitaður um ákæruna þegar dómurinn féll í íranska byltingardómstólnum.
Nili sagði að bankareikningar Panahi hefðu fyrirvaralaust verið frystir í síðustu viku og þeir hefðu í kjölfarið farið saman á skrifstofu saksóknara í Tehran sem greindi þeim frá dómnum. Auk fangelsisvistarinnar og tveggja ára samfélagsmiðla- og ferðabanns úrskurðaði dómstóllinn að eigur hans yrðu gerðar upptækar.
Fangelsaður og settur í kvikmyndagerðarbann
Panahi hefur ítrekað komist í kast við írönsk yfirvöld og dómstóla. Leikstjórinn fjallaði um stöðu íranskra kvenna í The Circle (2000), þriðju kvikmynd sinni, en síðan þá hafa kvikmyndir hans ýmist verið ritskoðaðar eða bannaðar í landinu.
Árið 2010 var Panahi dæmdur í sex ára fangelsi fyrir áróður gegn íslamska lýðveldinu og settu írönsk yfirvöld á hann tuttugu ára kvikmyndagerðarbann. Panahi sat inni í þrjá mánuði áður en honum var sleppt gegn greiðslu tryggingar.
Þrátt fyrir að mega ekki stunda kvikmyndagerð hefur Panahi síðan þá leikstýrt sex kvikmyndum, þar á meðal This Is Not a Film (2011), Taxi (2015) og 3 Faces (2018). Leikstjórinn var aftur fangelsaður árið 2022 en var sleppt úr haldi eftir að hafa farið í hungurverkfall.
Kvikmyndagerðarbanni Panahi var aflétt árið 2023 og fékk hann leyfi yfirvalda til að ferðast til Cannes með kvikmyndina It Was Just an Accident (2025) sem hlaut Gullpálmann á hátíðinni.
Þrátt fyrir það var Panahi dæmdur í eins árs fangelsi af írönskum dómstólum í desember síðastliðnum fyrir að taka þátt í áróðri gegn íranska ríkinu. Hann ákvað þrátt fyrir það að snúa aftur til landsins í apríl.
„Ég er þannig manneskja að ég verð að vera í landinu mínu,“ sagði Panahi við Variety um dóminn. „Ég þarf að anda þar og vinna þar. Ef þau vilja halda þessum dómi til streitu geta þau gert það. Ekkert mun fá mig til að skipta um skoðun um að fara þangað aftur.“