Stjórnvöld á Spáni hafa staðfest að 64, hið minnsta, hafi farist í lestarslysi sunnan við Madríd í morgun. 80 slösuðust, þar af 50 alvarlega. Björgunarstörf standa enn yfir á vettvangi. Óttast er að enn fleiri hafi beðið bana í slysinu. Hið minnsta 55 af þeim sem slösuðust hafa verið fluttir á spítala í Castilla-La Mancha-héraði.
Einni hraðlest ekið á aðra kyrrstæða hraðlest
Spænski fjölmiðillinn El País hefur greint frá því að hraðlest hafi verið kyrr á lestarteinum og að annarri hafi verið ekið aftan á hana. Tveir vagnar lestarinnar sem var kyrr ultu niður brekku. Þá hafa spænskir fjölmiðlar greint frá því að svo virðist sem að fyrir slysið hafi eitthvað komið upp á lestarteinunum og nokkrum lestum því gert að stoppa. Svo hafi öllum verið leyft að halda áfram en að ein lestin hafi ekki komist af stað. Hún hafi því verið kyrrstæð á teinunum þegar hinni var ekið á hana.
Kerfið sem stýrir lestunum er yfirleitt sjálfvirkt en þegar eitthvað kemur upp á, eins og virðist hafa gerst fyrir slysið í morgun, taka starfsmenn við stjórninni. Mögulegt er talið að þeim hafi orðið á mistök.
Var í veitingavagni þegar slysið varð
Einn farþeganna, Rafael Barcelo, lýsir því þannig í viðtali við spænska ríkissjónvarpið, RTVE, hvernig hann hafi verið í lest sem var stopp í tíu mínútur á teinunum. Svo hafi komið mikið högg þegar hinni var ekið á hana. Hann slapp að mestu við áverka og hlaut högg á höfuðið. Vinur hans slasaðist meira, á baki. Þeir áttu sæti í vagni númer sjö sem fór illa í slysinu en voru í veitingavagni þegar slysið varð. „Við vorum bara þarna saman að drekka kaffi þegar þetta gerðist. Ef við hefðum ekki verið þar værum við meðal þeirra látnu.“
Kosningabarátta stendur sem hæst á Spáni vegna þingkosninga í lok nóvember. Stjórnmálaflokkar aflýstu öllum viðburðum eftir slysið.