Ísraelsmenn kjósa til þings í dag og ljóst er að árásin 7. október fyrir þremur árum, sú mannskæðasta í sögu landsins, hefur veruleg áhrif á val, ekki síst ungu kynslóðarinnar í Ísrael sem kýs í fyrsta sinn. Jón Björgvinsson, fréttaritari RÚV, er í Ísrael.
Vegna stríðsátaka og óvissu í stjórnmálum hafa tvöfalt fleiri flust frá Ísrael en til þess á undanförnum mánuðum. Brottfluttir Ísraelsmenn hafa þó streymt aftur til landsins á undanförnum dögum til að greiða atkvæði.
Þær snúast ekki bara um Bíbí eða ekki Bíbí, þingkosningarnar hér í Ísrael, með öðrum orðum hvort Netanjahú nái að stíga aftur á pall forsætisráðherra eftir 19 ára setu, að vísu sundurslitna.
Gadi Eisenkot, helsti andstæðingur Netanjahús, sakar forsætisráðherrann um að hafa virt að vettugi viðvaranir um fyrirhugaða árás Hamas fyrir þremur árum.
En kosningin snýst þó einnig um hvort hægt verði að klambra saman stjórn án hörðustu andstæðinga Palestínu í þessum frumskógi stjórnmálaflokka. Það eru samtals 38 flokkar í framboði.
Þar skiptir seta Itamars Ben-Gvir, núverandi öryggismálaráðherra, miklu máli. Hann er sá sem kom aftur á dauðarefsingum í Ísrael, jók vopnaburð almennings og hvetur til þjóðernishreinsana á Gaza í harðskeyttum kosningamyndskeiðum á netinu.
Það gefur auga leið að Ben-Gvir, sem þó er ekki sá sem lengst vill ganga í þessari landrýmingu, vill ekki heyra minnst á tveggja ríkja lausnina og reyndar er hún nánast tabú í þessari fyrstu kosningabaráttu sem efnt er til þremur árum eftir að Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu árás á Ísrael í nær 80 ára sögu ríkisins.
Þessi árás hafði djúpstæð áhrif á þá 640 þúsund ungu kjósendur sem nú ganga að kjörborðinu í fyrsta sinn. Kannanir sýna að þeir styðja í ríkum mæli hörðustu andpalestínsku öflin í ísraelskum stjórnmálum og þar hefur Ben-Gvir ötullega tekist að ná eyrum þeirra.
Framleiðir myndbönd fyrir Ben-Gvir
Zehavit Einstein, 21 árs áhrifavaldur og heittrúaður gyðingur, framleiðir myndbönd Ben-Gvirs.
„Unga fólkið er gáfað. Það gerir sér grein fyrir að friður verður aldrei annað en ímyndun nema með styrk, afli og fælingu… og unga fólkið skilur það.“
Þetta er landið þar sem ungar konur spóka sig um, ekki aðeins með tösku á öxlinni heldur einnig skotvopn, á meðan aðrir neita að gegna herþjónustu.
Það er helsta kosningamálið á meðal heittrúaðra og þeirra 100 þúsund ungra kjósenda úr þeirra röðum sem Netanjahú hefur boðað í herinn. En þeir neita bæði að bera vopn og snjallsíma.
„Við höfum allir verið kallaðir í herinn og ef herlögreglan nær okkur förum við beint í steininn......sem liðhlaupar,“ segja tveir piltar.
Annar piltur sem er spurður hvers vegna hann vilji ekki fara í herinn.
„Ég hef annað mikilvægara fyrir stafni. Sem er hvað? Að læra… að stúdera Tóra trúarritið.“
Fæstir búast við miklum breytingum
Ungu mennirnir í Ísrael velja þann rétttrúaðasta sem rabbíninn segir þeim að kjósa. Vegna herkvaðningarinnar fær Netanjahú ekkert af þeirra atkvæðum.
Á meðan streymir annað ungt fólk í herþjónustu, her sem kallar á sífellt meiri mannafla, á meðan hvarvetna er minnst þeirra tæplega þúsund úr þeirra röðum sem fallið hafa á síðustu þremur árum.
Fæstir búast þó við byltingarkenndum breytingum í kjölfar þingkosninganna, hvorki varðandi landtökubyggðir né Gaza, hver svo sem leiðir nýja samsteypustjórn og hvar sem hún lendir í litrófi hægri sinnaðrar þjóðernisstefnu.