Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að konu beri að greiða fyrrum leigusala sínum, sem er fyrirtæki, bætur eftir að hún leyfði kettinum sínum að gera þarfir sínar inni í íbúð sem hún leigði af leigusalanum. Þurfti að skipta um allt gólfefni í íbúðinni þar sem það reyndist vera ónýtt vegna lyktar, hlands og saurs. Einnig angaði íbúðin af hlandlykt..Leigusalinn krafðist um 1,8 milljónar króna í bætur vegna tjónsins og þar að auki um 572.000 króna í leigubætur þar sem íbúðin hafi verið óíbúðarhæf eftir leigjandann.
Leigjandi situr í súpunni eftir að hafa leyft ketti að gera þarfir sínar í íbúðinni