Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur telur það ekki hafa verið rétt skref hjá Alexander Stubb, forseta Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, að hringja í Pútín í morgun.
„Við ættum að koma saman sem ein heild Evrópu í staðinn fyrir svona einstaklingsframtak,“ sagði Frederiksen í sjónvarpsviðtali á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í morgun. Símtalið var ákveðið í samráði við Volodymyr Zelenský Úkraínuforseta. Frederiksen kveðst hafa efasemdir um slíkar samræður við Pútín og að þær hafi verið án samráðs við aðra Evrópuleiðtoga. Þá sagði hún engin teikn á lofti um að Rússar vilji semja um frið við Evrópu, hvorki í fjölþáttastríðinu sem þeir beiti gegn bandalagsríkjum Úkraínu, né við Úkraínu þar sem þeir geri harðar árásir daglega, með miklu manntjóni.
Støre og Stubb ræddu við Pútín um diplómatískar leiðir til að enda innrásarstríðið sem Rússar hófu í febrúar 2022. Þeir sögðu samtalið hafa verið „hreinskiptið og innihaldsríkt“. Kreml lýsti því yfir að Pútín hafi í samtalinu sagt Evrópuríki og NATO draga stríðið á langinn með stuðningi sínum við Úkraínu.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna eru samankomnir á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki. NRK hefur eftir Støre að hann sé ósammála gagnrýni Frederiksen. Evrópusambandið hafi ekki verið með sameiginlega nálgun í fjögur ár. „Við tölum ekki fyrir hönd neinna nema okkar sjálfra.“ Hann segir mikilvægt að Noregur og Finnland, sem eru nágrannaríki Rússlands, geti átt í beinum viðræðum við stjórnvöld þar. Á þeim tímum sem við lifum núna gangi það ekki að það sé aðeins Bandaríkjastjórn sem sé í talsambandi við Rússa.