Ákærurnar tengjast uppákomu fyrir utan Fairford-flugherstöðina á vestanverðu Englandi 27. september. Fimm manns voru handteknir þar og var viðbúnaður líkt og þeir hefðu hugað á hryðjuverk þar. Flugvöllurinn var notaður undir bandarískar sprengjuflugvélar sem tóku þátt í loftárásum á Íran áður en Bandaríkjaher lagði á flótta frá nokkrum herstöðvum í þessum mánuði.
Breskir saksóknarar segja að annar mannanna sé ákærður fyrir að aðstoða írönsku leyniþjónustuna. Hann var handtekinn í vikunni.
Hinn maðurinn var á meðal þeirra fimm sem voru handteknir við herstöðina. Honum var sleppt strax á eftir en svo handtekinn aftur í síðustu viku. Hann sætir nú ákæru fyrir innbrot á lokað svæði í tilgangi sem sé skaðlegur breskum þjóðarhagsmunum.
Uppi varð fótur og fit þegar mennirnir voru handteknir á sínum tíma. Fjöldi íbúa í nágrenninu var látinn yfirgefa heimili sín á meðan sprengjusérfræðingar voru sendir inn. Engar sprengjur fundust þó í bíl mannanna, en töluvert magn af eldsneyti.
Írönsk stjórnvöld hafa hafnað því að hafa nokkuð með uppákomuna að gera. Þau telji þó allar herstöðvar sem notaður séu í stríði gegn Íran lögmæt skotmörk.