Rætt verður einnig við Kára Sigurðsson, formann stéttarfélagsins Sameykis, sem gefur meirihlutanum í Reykjavík falleinkunn. Hann býst við því að svipuðum fjölda verði sagt upp í dag og í síðustu skipulagsbreytingum borgarinnar.
Afmörkuð leitaraðgerð fer fram í Grindavík í dag vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður, eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Smári Jökull fréttamaður hefur fylgst með aðgerðum í morgun og verður í beinni útsendingu frá Grindavík.
Við segjum einnig frá því að Íslendingar standa á tímamótum í netöryggismálum og þurfa að horfast í augu við breyttan veruleika og bregðast við að mati sviðsstjóra netöryggissviðs Fjarskiptastofu.
Og Eurovision kemur við sögu, en Hollendingar eru hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt.
Fjölbreyttur hádegisfréttatími á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.