Lögreglunni barst tilkynning um nakinn mann á Laugaveginum. Þá kom í ljós að um ölvaðan stegg væri að ræða. Sá slapp til að byrja með með aðvörun en seinna í þættinum varð lögreglan að handtaka manninn, því þá var hann aftur mættur, nakinn á Arnarhóli. Hér að neðan má sjá atriðið sjálft. Hægt er að sjá þættina Dagbók lögreglu inni á streymisveitunni Sýn+.
Þættirnir Dagbók lögreglu byggja á raunverulegum útköllum sem hafa komið fyrir í dagbók lögreglunnar. Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.