Ívar Örn Jónsson er faðir, eiginmaður og tónlistarmaður sem ólst upp í mikilli sorg í Vestmannaeyjum. Hann er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.Þegar Ívar fæddist höfðu foreldrar hans þegar jarðað tvo syni sína. „Einn bróðir minn fæddist mjög veikur og dó. Hinn var víst mjög virkur og þegar hann var fimm ára var Hersir bróðir bara níu ára og átti að fylgjast með honum meðan foreldrar okkar skruppu eitthvað. Alexander, litli bróðir, stakk af og týndist.”
Þrír bræður Ívars Arnar eru látnir: „Þetta var slys og enginn níu ára drengur getur borið þessa ábyrgð”