Málefni um meint vanhæfi Katrínar Sigurjónsdóttur var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar á dögunum. Sveitarstjórnin samþykkti samhljóða bókun sem styður Katrínu í starfi.
Í bókuninni segir: „[Sveitarstjórn] lýsir fullu trausti og stuðningi við Katrínu í störfum sveitarstjóra og telur hana almennt ekki vera vanhæfa til að fjalla um málefni fiskþurrkunar Samherja á vettvangi sveitarfélagsins. Vanhæfi er þó metið í hvert skipti líkt og í öllum málum sem sveitarstjórn fjallar um.“
Telja umfjöllun RÚV á hæpnum forsendum
Katrín, sem áður starfaði sem sveitarstjóri í Norðurþingi og Dalvíkurbyggð, hóf störf 5. ágúst í Þingeyjarsveit. Fram kemur að hún hafi gert grein fyrir tengslum sínum við Samherja í gegnum fyrirtæki hennar og eiginmanns hennar, Samleið.
Sveitarstjórnin lýsir yfir vonbrigðum með fréttaflutning RÚV af málinu: „ Sveitarstjórn harmar að verið sé að elta ólar við að tortryggja Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Sveitarstjórn finnst umfjöllun Ríkisútvarpsins um málið vera á hæpnum forsendum.“
Hefur ekki reynt á hæfi Katrínar
Sveitarstjórnin ítrekar síðar í bókuninni að hún hafi haft vitneskju um eignarhald Katrínar í Samleið. Frá því að Katrín hóf störf segir sveitarstjórnin að aðeins eitt málefni tengt Samherja eða Laugafiski hafi ratað á þeirra borð. Það hafi verið kynning á rannsókn sem sé hluti af vöktunaráætlun en Samherji missti starfsleyfið á Laugum fyrr í haust, eins og má lesa nánar um hér.
„Hæfi er alltaf til skoðunar og borið upp eftir því sem við á, en í tilfelli Katrínar hefur ekki á það reynt, enda hefur sveitarstjórn engar stjórnsýsluákvarðanir tekið í málinu frá því hún hóf störf hjá Þingeyjarsveit.“
Telja starfsemi Samherja gríðarlega mikilvæga samfélaginu
Síðar í sömu fundargerð er kynnt umsögn Þingeyjarsveitar sem var send Umhverfis- og orkustofnun. Stofnunin veitt Samherja nýverið bráðabirgðaleyfi til áframhaldandi fiskþurrkunar á Laugum.
„ Að mati sveitarstjórnar gæti áframhaldandi stöðvun starfseminnar því haft alvarleg áhrif, fyrst og fremst á starfsfólk og fjölskyldur þeirra, en einnig á atvinnulíf og samfélag á Laugum og í nærliggjandi byggðum. Í fámennum samfélögum hefur brotthvarf starfa hlutfallslega mikil áhrif og dregið úr nauðsynlegri fjölbreytni atvinnulífs.“
Sveitarstjórnin vill þó líta á málið frá víðara samhengi og hlusta á gagnrýnisraddir íbúa. Atvinnuhættir séu breytilegir og fleiri íbúar séu farnir að reiða sig á ferðaþjónustu fremur en eldri atvinnuhætti eins og landbúnað og sjávarútveg.
„Að því sögðu þá má með réttu segja að sveitarstjórn yrði með þeim fyrstu að fagna því ef það fyndist önnur starfsemi sem betur samræmdist aðstæðum og umhverfi, til að nýta húsnæði og aðstöðu sem og það heita vatn sem er í boði.“