Leyfi til að selja Ljósleiðarann að hluta eða öllu leyti eða skrá fyrirtækið á markað var veitt á hluthafafundi fyrirtækisins í gær. Það var veitt með fyrirvara um samþykki eigandans, Orkuveitunnar, sem er að stærstum hluta í eigu Reykjavíkur.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði í viðtali við RÚV í maí að til stæði að selja Ljósleiðarann og Carbfix sem eru í eigu Orkuveitunnar. Sjálfstæðismenn í borginni höfðu áður lagt til að Ljósleiðarinn yrði seldur.
Ljósleiðarinn varð til sem Gagnaveita Reykjavíkur 2007 með það yfirlýsta markmið að ljósleiðaravæða borgina og tryggja háhraðanettengingar. Fyrirtækið þjónustar fjarskiptafyrirtæki, heimili og fyrirtæki víða um land.
Í tilkynningu frá Ljósleiðaranum segir að samþykkt hluthafafundar feli í sér umboð til margvíslegra aðgerða sem allar hafi það markmið að hámarka verðmæti Ljósleiðarans. Niðurstaðan gæti orðið sú að fyrirtækið verði selt í heild sinni, nýir fjárfestar eignist það að hluta eða í heild eða að Ljósleiðarinn verði skráður á markað.