Á sama tíma er talið ólíklegt að stjórnarandstöðuflokkar, með Gadi Eisenkot í broddi fylkingar, nái því 61 þingsæti sem þarf til að ná meirihluta og mynda ríkisstjórn, eftir því sem fram kemur í erlendum fréttamiðlum.
Vegna hlutfallskosningakerfis í Ísrael er hefð fyrir samsteypustjórnum og baráttan um völdin getur leitt til óvæntra bandalaga, eins og dæmi eru um, eftir því sem fram kemur í breska ríkismiðlinum BBC.
Þetta gæti þýtt að fram undan séu vikur eða mánuðir af pólitísku þrefi. Talið er að um 70 þúsund Ísraelar, búsettir erlendis, hafi komið heim til að kjósa og um hálf milljón manna mun greiða atkvæði sitt í fyrsta sinn.