Vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í Oleshky tók gildi klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Al Jazeera hefur þessar upplýsingar eftir rússneska varnarmálaráðuneytinu.
AFP fréttaveitan segir að Rússar og Úkraínumenn hafi samþykkt að hefja vopnahlé klukkan eitt en AFP hefur þó ekki enn fengið staðfestingar á að vopn hafi verið lögð niður í borginni.
Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Rússar hertóku bæinn 2022 og þaðan hafa borist fregnir af skelfilegu ástandi.
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti á föstudag að hún hefði haft milligöngu um vopnahléið. Forsetafrúin sagði að embættismenn frá Rússlandi og Úkraínu myndu heimsækja íbúa í borginni og meta þörf þeirra fyrir aðstoð.
Ekki liggur þó fyrir hverjir hafa eftirlit með vopnahléinu, hvernig neyðaraðstoð verður komið til borgarinnar eða hversu lengi vopnahlé stendur yfir.
Um 24.000 manns bjuggu í Oleshky fyrir innrásarstríð Rússlands. Talið er að um 2.000 manns séu innlyksa þar.
Fólk hefur lýst því sem helvíti á jörðu. Rússar hafa setið um bæinn og varla hleypt mat þangað síðan í maí. Fólk hefur soltið og neyðst til að leggja sér gras til munns. Rússneskir hermenn eru sakaðir um að hafa skotið fólk á götum úti. Allt í kringum bæinn eru árásardrónar og jarðsprengjur og því hefur fólk ekki getað flúið.