Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir

Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir

Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir

Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á kjörseðlinum sé í raun spurt hvort kjósendur telji hann bera ábyrgð á því að ekki hefði tekist að afstýra 7. október, hvernig þeir meta þriggja ára stríðsrekstur stjórnar hans og hvort hann eigi að halda áfram eftir nær tvo áratugi sem ráðandi afl í ísraelskum stjórnmálum.

Helsti áskorandi hans og andstæðingur er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Nýr miðjuflokkur hans, Yashar, mælist stærsti flokkurinn í öllum helstu lokakönnunum. Það þýðir þó alls ekki að Eisenkot verði forsætisráðherra. Það virðast allir í raun sammála um að hann sé ekki sérlega spennandi kandídat.

Þjóðin virðist skipt í helminga eftir afstöðu sinni til sitjandi forsætisráðherra.Getty

Eisenkot þykir ekki mjög mælskur eða sjarmerandi maður en því hefur hann snúið upp í helsta kost sinn. Því þessa fyrrnefndu eiginleika þykir Benjamín Netanjahú hafa sem hefur haft tögl og hagldir á ísraelskum stjórnmálum með stuttu hleí 2021 og 2022 þegar hann leiddi stjórnarandstæðuna. Í kosningabaráttu sinni hefur Eisenkot lagt áherslu á að hann sé hreinn og beinn, laus við allar silfurskeiðar og sérhagsmuni, sem endurspeglast ekki síst í nafni flokks síns Yashar sem þýðir heiðarleiki á hebresku.

Hvorug fylkingin virðist eiga augljósa leið að þeim 61 þingmanni sem þarf til að mynda ríkisstjórn, en á ísraelska þinginu Knesset sitja 120 þingmenn. Lokakannanir sýna gyðingaleidda stjórnarandstöðuflokka með um 52 til 56 sæti og núverandi Netanyahu-blokk með um 50. Arabískir flokkar fá saman um 14 til 16 sæti og geta því ráðið úrslitum, þrátt fyrir að ýmsir stærstu gyðingaleiddu stjórnarandstöðuflokkarnir hafi útilokað ríkisstjórnarsamstarf við þá.

Það sem á eftir að ráða úrslitum og næstu ríkisstjórn í Ísrael er því ekki hvor þeirra Eisenkot og Netanjahú fái fleiri atkvæði heldur hvaða flokkar ná inn, hvaða loforð halda eftir kosningar og hver getur hnoðað saman 61 þingmanni.

Um hvað er kosið?

Sjöundi október

Það er ekki að undra að grimmileg árás Hamas á ísraelska borgara þann 7. október 2024 marki enn djúp spor í ísraelsku þjóðarsálina og það er án efa það sem litar álit kjósenda á sitjandi forsætisráðherra. Stærsti öryggisbrestur í sögu ísraelska hersins og jafnframt blóðugasta árás á landið í annars ofbeldisfullri sögu þess átti sér stað þegar hann sat í forsætisráðherrastólnum.

Sjá einnig: „Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn

Samkvæmt umfjöllun fréttaveitunnar AP líta 68 prósent ísraelskra gyðinga á sjöunda október sem lykilþátt í sinni ákvörðun. Meðal arabískumælandi Ísraela voru þeir aðeins um 32 prósent.

Netanjahú hefur kennt stjórnendum í her og leyniþjónustu Ísraels um að Hamas hafi náð að koma þeim að óvörum og sömuleiðis rekið harða stefnu í varnar- og öryggismálum, lagt Gasa í rúst með tugum þúsunda manna, kvenna og barna alls ótengdra Hamas í valnum, auk þess að kynda undir ofbeldi landtökumanna á Vesturbakkanum og rekið þar eins konar þjóðhreinsistefnu með stuðningi samráðherra sína úr öfgafullum og rasískum stjórnarflokkum.

Herskylda rétttrúnaðargyðinga

Annað mál sem er ísraelskum kjósendum ofarlega í huga er herskylda rétttrúnaðargyðinga eða Haredim eins og þeir heita á hebresku. Í ríkisstjórnum Netanjahú í gegnum árin hafa sérflokkar þeirra iðulega átt sæti og ráðherraembætti og þeir hafa verið lykilhluti baklands hans frá upphafi.

Í Ísrael er það þannig í dag að rétttrúnaðargyðingar við nám í trúarlegum fræðum gyðinga eru undanþegnir herskyldunni sem annars gildir um alla Ísraela óháð kyni. Þessi stefna hefur lengi verið umdeild í landinu en sérstaklega eftir síðustu tvö ár af nær stanslausum átökum með tilheyrandi mannfalli. Varaliðssveitir hafa ítrekað verið ræstar á vígvöllinn með mannfalli innan þeirra raða frá sjöunda október.

Bezalel Smotrich, landtökumaður og ráðherra, leiðir HaTzionut HaDatit og styður þjóðernishreinsunarstefnu á Vesturbakkanum. Hann er í ríkisstjórn Netanjahú.Getty

Gadi Eisenkot helsti andstæðingur Netanjahú og leiðtogi Yashar hefur heitið því að afnema þessar undanþágur. Hann missti son sinn og tvo frændur í innrásinni á Gasa.

Flokkarnir Shas og Yahadut HaTorah verja undanþágurnar með kjafti og klóm. Flokkar á borð við Yisrael Beytenu og stórir hlutar stjórnarandstöðunnar vilja jafna herþjónustubyrðina.

„Umbætur“ í dómskerfinu

Fyrir sjöunda október 2024 varð var stærsta pólitíska bitbeinið umfangsmikil „umbótaáætlun“ ríkisstjórnar Netanjahú í dómskerfinu. Hann hét því að veikla hæstarétt landsins sem margir andstæðingar hans töldu tengjast því að hann hefur ítrekað verið sóttur til saka vegna spillingarmála og hefði því hagsmuna að gæta í að draga úr valdi ókjörinna dómara.

Sjá einnig:  Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka

Tillögurnar leiddu til fjölmennra mótmæla árið 2023. Áætlunin var að stórum hluta sett á ís eftir árásina, en flokkar Netanjahú-blokkarinnar vilja halda hluta hennar áfram. Stjórnarandstaðan lítur hins vegar á átökin sem stærri spurningu um sjálfstæði dómstóla og lýðræðislegra stofnana.

Gasa og Vesturbakkinn

Fyrir Íslendingum kemur það eflaust mest á óvart í sambandi við kosningar morgundagsins hvað málefni Palestínumanna á Vesturbakkanum og ekki síður Gasa hafa verið fyrirferðalítil í aðdraganda kosninganna. Þó segja megi að öll málefni litist af átökunum.

Stríðið í Gasa, borgaraleg réttindi Palestínumanna og hugsanlega tveggja ríkja lausn hafa ekki átt upp á borðið í kosningaherferðum stærstu flokkanna. Enda má segja að stærstur hluti þjóðarinnar sé nokkuð samróma í þeim málum. Breið samstaða er á milli gyðinglegra flokka um harða öryggis-, varnar- og utanríkisstefnu eftir sjöunda október.

Varðturn ísraelska hersins í útjaðri Jerúsalem. Borginni Hebron á Vesturbakkanum var hér um bil lokað síðustu daga fyrir kosningar eftir að palestínskir menn skutu tvo ísraelska hermenn til bana þar á dögunum.Getty

Bæði helstu forsætisráðherraefnin, Eisenkot og Netanjahú, eru andvígir tilvist sjálfstæðs palestínsks ríkis og tortryggnir í garð stjórnarinnar á Vesturbakkanum. Eisenkot hefur gagnrýnt ofbeldi landtökumanna þar og stuðningi stjórnvalda við þá en styður áframhaldandi byggð ísraelskra landtökumanna á ákveðnum svæðum Vesturbakkans.

Ljóst er þó að ráði afstaða Arabaflokka úrslitum eftir morgundaginn eiga afstöður þeirra tveggja eftir að skipta máli við stjórnarmyndun.

Efnahagsmál

Efnahagur Ísraels hefur sýnt meiri seiglu en margir bjuggust við. Hlutabréf hafa almennt hækkað mikið í verði og sikillinn styrkst frá 2023.

Sjá einnig: Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru

Undir yfirborðinu eru þó blikur á lofti. Reuters metur kostnað stríðsrekstursins undanfarin ár á meira en 55 milljarða Bandaríkjadala, ríkisskuldir eru komnar nálægt 70 prósentum af vergri landsframleiðslu og halli ríkissjóðs er áætlaður um 4,5 prósent.

Framfærslukostnaður er einnig mikið áhyggjuefni kjósenda, þó hann hafi fengið minni athygli í kosningabaráttunni en öryggismálin.

Forsætisráðherraefnin

Gadi Eisenkot

Eins og fram hefur komið eru Ísraelar frekar að velja eða hafna áframhaldandi setu Benjamíns Netanjahú á valdastól en að kjósa nýjan forsætisráðherra. Helsti andstæðingur hans er Gadi Eisenkot sem er nýgræðingur á sviði stjórnmálanna.

Eisenkot er 66 ára og var yfirmaður ísraelska hersins á árunum 2015 til 2019. Hann tók sæti í neyðarstjórn Netanjahú eftir sjöunda október en yfirgaf hana eftir átta mánuði og brigslaði Netanjahú um að hafa enga áætlun til að ná markmiðunum með innrásinni.

Gadi Eisenkot ávarpar stuðningsmenn sína á kosningafundi í kvöld.Getty

Sjálfur missti hann son sinn og tvo frændur á vígvellinum á Gasa og hefur gert feril sinn í hernum og fórn fjölskyldu sinnar að stórum hluta kosningabaráttu sinnar.

Þó að Eisenkot sé vissulega helsti mótherji Netanjahú er ekki þar með sagt að það sé mikil hugmyndafræðileg gjá þeirra á milli. Það væri hæpið að kalla hann friðarsinna, hann hefur enda verið við stjórn ísraelska hersins um árabil. Hann er sömuleiðis andvígur tilvist palestínsks ríkis.

Benjamín Netanjahú

Benjamín Netanjahú þarf varla að kynna. Hann hefur verið við völd í Ísrael lengst allra í sögu landsins og setið þar nær samfellt frá árinu 2009. Hann er 77 ára gamall, menntaður í Bandaríkjunum og góður vinur Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Vinátta hans og Trump hefur raunar spilað stóra rullu í kosningabaráttu hans. Netanjahú hefur stillt sér upp sem eina frambjóðandanum sem er fær um að tryggja öryggi Ísraels í ljósi sífjandsamlegra umhverfis í Miðausturlöndum og víðar, ekki síst vegna stríðsins á Gasa, þjóðhreinsistefnu á Vesturbakkanum og yfirlýstum stuðningi ráðherra í ríkisstjórn hans á því að hrekja Palestínumenn endanlega frá heimilum sínum.

Benjamín Netanjahú hefur verið forsætisráðherra með hléum frá árinu 2019.Getty

Átök við Hamas, Hezbollah og Íran frá sjöunda október hafa litað kosningaherferð Netanjahú og varaði hann meðal annars við því fyrr í dag að „önnur helför“ væri í vændum ef hann héldi ekki í völd. Með þessum skilaboðum fylgdi gervigreindarmynd af kjarnorkuárás á Tel Avív.

Síðustu skoðanakannanirnar

Síðustu kannanir sem birtar verða fyrir kosningar voru mjög samstíga. Þær benda allar til þess að Yashar-flokkur Eisenkot hafi naumlega betur en að leiki á hnífsegg. Erfitt sé að skera úr um hvort flokkar á borð við HaMiluimnikim, eins málefnis flokkur um að afnema undanþágur frá herskyldu, eða öfgarétttrúnaðarflokkurinn Amcha Yisrael nái þeim 3,25 prósentum sem þarf til að ná inn á þing. Nái flokkur yfir þröskuldinn fá þeir fjóra þingmenn en endi þeir undir honum falla atkvæðin niður dauð.

Stöð 12

Yashar 23 – Likud 21 – B'Yachad 15 – HaDemokratim – 10

Stjórnarandstöðublokkin 56, Netanjahú-blokkin 50, arabískir flokkar 14

Stöð 13

Yashar 22 – Likud 19 – B'Yachad 14 – HaDemokratim 10

Stjórnarandstöðublokkin 54, Netanjahú-blokkin 50, arabískir flokkar 16.

Kan

Yashar 22 – Likud 20 – B'Yachad 14.

Stjórnarandstöðublokkin 52, Netanjahú-blokkin 50, arabískir flokkar 14 og HaMiluimnikim 4.

Netanjahú er gífurlega umdeildur á heimsvísu og handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum af Alþjóðadómstólnum vegna stríðsglæpa á Gasaströndinni.Getty

B'Yachad er hægriflokkur Naftali Bennett og Yair Lapid sem eru báðir fyrrverandi forsætisráðherrar og þeir einu sem tekist hefur að velta Benjamín Netanjahú úr þeim stól á undanförnum áratug þegar þeir mynduðu skammlífa ríkisstjórn árið 2021.

Ljóst er því að erfitt verður fyrir hvora fylkingu að mynda ríkisstjórn sama hver þeirra ber sigur úr býtum. Samkvæmt reiknuðu meðaltali Reuters á ótal skoðanakönnunum fá stjórnarandstöðuflokkar 62 þingmenn af 120 en þeirra á meðal yrðu þingmenn Arabaflokkanna Ra'am og Sameinaða listans sem margir gyðinglegir stjórnarandstöðuflokkar hafa útilokað.

Atriði eins og kjörsókn arabískumælandi Ísraela og það hvort HaMiluimnikim eða Amcha Yisrael nái inn á þing geta því ráðið framtíð Ísraels á næstu árum. Sömuleiðis það hver verður fyrstur að brjóta kosningaloforð sín.

#arabaflokkarnir #gætu #kosningar #ráðið #ísrael


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262954041d/kosningar-i-israel-arabaflokkarnir-gaetu-radid-urslitum

📰 Aðrar fréttir

Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 0
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 0
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 0
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 0
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 2
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 1
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 3
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 3
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 5
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 5
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 4
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 5
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 4
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ segir Jasmina Vajzovic um færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar í hópnum Ísland – Þvert á flokka þar sem han...
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
📅 26.10.2026 👁️ 4
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
A folded map rests on a terrace table as the morning light reaches its edge. Beyond the railing, the sea is still a soft strip of colour. For a travel...
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum ...
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
📅 26.10.2026 👁️ 4
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
The next fortnight sees two elections on different continents. The outcomes will shape geopolitics and the global economy, writes James Landale
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
📅 26.10.2026 👁️ 4
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunart...
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
Norski áhrifavaldurinn Christian Brennhovd var í sumar sektaður um 120.000 norskar krónur, sem gera um 1,5 milljónir íslenskra króna, vegna ólöglegra ...
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður...
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
„Við erum bara hér til að brjóta allt og bramla,“ svarar ungur maður þegar hann er spurður hvers vegna hann taki þátt í mótmælum í Frakklandi. Maðurin...
Chris Brown á skil­orði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Chris Brown á skil­orði - Vísir
BBC greinir frá. Hinn meðákærði, raddþjálfi Browns og rapparinn Omololu Akinlolu eða HoodyBaby, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm. Báði...