Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan um verkefni sín eins og staðan er nú.
Sveitarfélög, félag yfirlögregluþjóna og lögreglufélög á landsbyggðinni hafa lýst áhyggjum af fyrirhugaðri sameiningu lögregluembætta. Umsagnarfrestur í samráðsgátt rann út í gær.
Skiptar skoðanir á sameiningaráformum
Í samráðsgátt bárust athugasemdir frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi sem öll lýstu áhyggjum af fyrirhugaðri sameiningu. Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa einnig kallað eftir því að lögregluembættið þar verði áfram sjálfstætt.
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra leggjast ekki gegn meginmarkmiðum frumvarpsins.
Þá bárust í samráðsgátt umsagnir frá Ísafjarðarbæ, Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Skagafirði, Húnabyggð, Múlaþingi og Stykkishólmi þar sem áhyggjur af aukinni miðstýringu koma fram.
Fleiri sveitarfélög sendu sínar umsagnir beint til ráðuneytisins.
Athygli vekur að starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra, Félag yfirlögregluþjóna og Lögreglufélög Vesturlands og Vestfjarða gagnrýna áformin.
Landssamband lögreglumanna tekur undir nauðsyn þess að fækka embættum í sinni umsögn og lögreglustjórafélag Íslands sömuleiðis.
Fjölnir Sæmundsson og Grímur Hergeirsson, formenn síðastnefndu félaganna sátu í stýrihópi á vegum ráðuneytisins ásamt Höllu Bergþóru Björnsdóttur ríkislögreglustjóra og Páli Winkel og Drífu Kristínu Sigurðardóttur fulltrúum dómsmálaráðuneytisins.
Stórir kjarnar sogi til sín og minni byggðalög líði fyrir
Hafþór Ingi þorgrímsson, formaður lögreglufélags Vesturlands, kannast ekki við ákall um sameiningar lögregluembætta innan lögreglunnar: „Það sem við teljum að beytist einna helst er þessi aukna miðstýring. Við þurfum ekki annað en að horfa til annarra sameininga til dæmis í heilbrigðiskerfinu og barnaverndarumdæmum og slíkt. Við sjáum að stóru kjarnarir soga til sín og minni byggðalög líða fyrir.“
Lögreglumenn gagnrýna skort á samráði. Dómsmálaráðherra segir viðbrögð lögreglustjóra og lögreglumanna almennt hafa verið jákvæð. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, minnir á að stýrihópur með fólki úr forystu lögreglunnar hafi komið að undirbúningi og að hún hafi heimsótt öll lögregluumdæmin og gert grein fyrir hugmyndum sínum.
Aðrar hugmyndir kynntar fyrir lögreglumönnum en þær sem eru í frumvarpi
Í umsögnum frá lögreglumönnum kemur fram að á þeim fundum hafi hugmyndirnar litið öðruvísi út. „Þessar kynningar sem urðu hér á vormánuðum voru með allt aðrar hugmyndir og allt aðrar sviðsmyndir en það sem er til umræðu núna,“ segir Hafþór. Þar hafi verið lagt upp með fjögur eða fimm lögregluembætti og umfangsminni sameiningu.
Í umsögn lögreglufélagsins á Vesturlandi segir jafnframt að ekki hafi verið leitað formlegrar afstöðu lögreglufélagsins til sameiningar embættanna. Þau hafi frétt af áformunum í fréttum, á sama tíma og almenningur.
Ekki langt síðan jafnvægi komst á eftir síðustu sameiningar
Þá bendir lögreglufélag Vesturlands á að aðeins 11 ár eru síðan umdæmi voru síðast sameinuð. Reynslan sýni að það taki langan tíma að byggja upp samstæða heild eftir sameiningu. Þá gæti viðbragðið breyst með aukinni miðstýringu. „Við teljum að samráð og aðgengi íbúa að stjórnendum og lögreglu yfirhöfuð muni líða fyrir þegar embættið er orðið svona stórt,“ segir Hafþór
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, segir áralanga umræðu hafa átt sér stað um sameiningu embætta og ákallið innan lögreglunnar eftir fækkun embætta sé ekki nýtt.
Fleiri aðgerðir til að efla lögreglu
Hún tekur fram að hvorki störfum né starfsstöðvum verði fækkað við breytinguna og að markmiðið sé að efla lögregluna og bendir á að fleira hafi verið gert í málum lögreglu. „Við höfum fjölgað lögreglumönnum, aukið fjármagn til lögreglu, ég er að kynna nýja löggæsluáætlun eða stefnu í löggæslumálum á miðvikudag ogvið erum að taka stór skref í fangelsismálum,“ segir Þorbjörg.
Hún staðfestir að í samræðum við lögregluembættin hafi verið rætt um fjögur eða fimm embætti. Jafnframt sé umræða innan lögreglunnar um að betur færi á að aðeins eitt lögregluembætti væri á landinu. Tillagan um þrjú embætti hafi komið frá stýrihópnum og eigi að koma í veg fyrir að höfuðborgarumdæmið gnæfi yfir minni embættum á landsbyggð.
Hvað aukna miðstýringu varðar segir Þorbjörg að í hverju embætti verði stjórnendateymi. Þrír til fjórir aðstoðarlögreglustjórar verði í hverju umdæmi, staðsettir á mismunandi stöðum. Áfram verði svo starfandi lögregluþjónar hringinn í kringum landið.
Hún bendir á að lítil og fámenn embætti hafi sömu skyldur og þau stóru að fást við stórar og flóknar sakamálarannsóknir en hafi kannski ekki sömu burði til þess. „Lítil embætti eiga í erfiðleikum með að ná utan um sín verkefni eins og staðan er í dag. VIð erum að reyna að hjálpa þeim að ná betri burðum,“ segir Þorbjörg.
Aðspurð segir Þorbjörg ekki liggja fyrir hvar lögreglustjórar og aðstöðulögreglustjórar verði staðsettir.