Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Glee.
Nokkrum árum síðar skaust hann upp á stjörnuhimininn í raunveruleikaþáttunum Æði, ásamt Patreki Jaime og Bassa Maraj.
Mikil sorg þegar þættirnir hættu
Binni, eins og hann er gjarnan kallaður, ræddi við blaðamann um þau ótrúlegu áhrif sem söng- og dansþættirnir Glee höfðu á hans líf og örlög, en þættirnir eru væntanlegir aftur á skjáinn eftir margra ára fjarveru og mikla sorg í leikarahópnum.
„Ég var að byrja aftur að horfa á þættina og er akkúrat með þátt í gangi núna,“ segir Binni í símann við blaðamann. Hann gat lengi ekki hugsað sér að horfa á þá.
„Ég treysti mér lengi ekki til að horfa aftur því ég upplifði svo mikla sorg þegar þættirnir hættu. Svo núna loksins þegar endurkoman var staðfest komst ég í svo mikið stuð aftur að ég ákvað að byrja aftur frá byrjun. Samfélagsmiðlarnir mínir eru líka stútfullir af brotum úr Glee og ég er að upplifa brjálæðislega mikla nostalgíu. Það er í raun erfitt að útskýra hvað þessir þættir voru stór hluti af lífi mínu.“
Mikill stuðningur fyrir ungan homma
Þættirnir hófu göngu sína árið 2009, þegar Binni var að verða tíu ára gamall. Hann hafði mikið dálæti á söngvaþáttum- og myndum og elskaði til að mynda leiknu Disneymyndirnar High School Musical.
„Mamma var svo búin að sjá einhvers staðar að söngvaþættir sem hétu Glee væru komnir út og benti mér á að þetta væri örugglega eitthvað fyrir mig. Þá kom einn þáttur á viku og ég beið alltaf ótrúlega spenntur eftir næsta.“
Binni kolféll strax fyrir þessum heimi.
„Þetta var einfaldlega bara það besta sem ég hafði séð. Ég elskaði karakterana og þetta lagði grunninn að því hvað ég þekki úr tónlistarsögunni, öll eldri lög sem ég þekki bara því ég horfði á Glee.
Svo var auðvitað mjög mikill fjölbreytileiki hjá karakterunum hvað varðar kynþætti og kynhneigð og fyrir ungan strák inni í skápnum var það ótrúlega valdeflandi. Ég vissi að ég væri samkynhneigður, ég hef eiginlega bara alltaf vitað það, en var ekki farinn að segja það við neinn á þessum tíma og Glee hjálpaði mér.“
Eldri strákarnir breyttu gangi sögunnar
Þegar Binni var í grunnskóla vissu nánast allir samnemendur hans hvað hann var hrifinn af þáttunum.
„Ég var þekktur sem strákurinn sem elskaði Glee og eldri strákarnir voru oft á göngunum að öskra Binni Glee á mig. Ég veit ekki hvort það hafi átt að vera móðgun en ég tók því bara ótrúlega vel og sagði já takk. Það er þeim að þakka að ég sé Binni Glee,“ segir Binni hlæjandi. Á þessum tíma notaðist hann við notandanafnið Binni Glee í flestöllu sem hann gerði á Internetinu.
„Þegar ég útskrifaðist úr menntaskóla var ég kominn með smá leið á þessu gælunafni og reyndi að eyða því og nota frekar Brynjar Steinn. Þegar ég byrjaði svo á Snapchat í menntaskóla datt mér einhvern veginn ekkert annað nafn í hug en Binni Glee og þá var ekki aftur snúið. Ég sé ekki eftir því í dag.“
Grátur á Héraðsskjalasafninu
Þrátt fyrir að þættirnir hafi að mörgu leyti snúist um sönggleði, samstöðu og það að tilheyra hefur mikil sorg fylgt þáttunum og nokkrir ungir leikarar fallið frá með sviplegum hætti. Í júlí árið 2013 lést aðalleikarinn Corey Monteith, þá 31 árs gamall, úr ofskammti fíkniefna.
„Ég upplifði mikið sjokk og gleymi þessu aldrei. Ég vaknaði við fréttirnar og var að mæta í unglingavinnuna þar sem allir spurðu mig hvort það væri í lagi með mig, meira að segja flokkstjórinn. Mér fannst dagurinn rosalega erfiður, ég reyndi að þrauka í gegnum vinnuna og ég held ég hafi svo farið að gráta um leið og ég kom heim.“
Sumarið 2020 lést svo Naya Rivera, sem lék Santana Lopez í þáttunum og var mikil hinsegin fyrirmynd fyrir marga. Hún var í miklu uppáhaldi hjá Binna og í raun ástæða þess að hann féll upphaflega fyrir þáttunum.
„Þetta sumar var ég að vinna á Héraðsskjalasafninu á Akureyri og fréttirnar fóru svo illa í mig að ég varð að fara heim. Santana er Glee fyrir mér, hún var svo mikil fyrirmynd og söng svo ótrúlega fallega og snerti mig. Ég grét og grét og ég man ekki hvernig ég útskýrði þetta fyrir vinnunni en ég var allavega algjörlega óhæfur í að gera annað en að fara heim.“
„Naya, ég elska þig svo mikið“
Naya Rivera drukknaði í Lake Piru í Kaliforníu þar sem hún var ásamt kornungum syni sínum sem blessunarlega slapp ómeiddur. Leit að henni fór fram í nokkra daga áður en hún fannst. Binni skrifaði færslu til minningar um Nayu þar sem stóð:
„Þegar þættirnir Glee hófu göngu sína var ég að verða tíu ára. Ég hefði ekki getað ímyndað mér hvað þessir þættir myndu hafa mikil áhrif á mig og manneskjuna sem ég er í dag. Þar fór fremst í flokki Naya Rivera. Karakterinn sem Naya Rivera lék í Glee, Santana Lopez, veitti samkynhneigðum strák sem var inni í skápnum mikinn innblástur og má jafnvel segja að hún hafi að miklu leyti mótað mig sem persónu.
Naya gerði karakterinn sinn relatable og hjálpaði öðrum að komast í sátt við kynhneigð sína, sem getur verið mjög erfitt. Hún veitti mér kjark til að finna og samþykkja sjálfan mig. Það gerði mikið fyrir mig að sjá bæði litaðan og samkynhneigðan karakter í sjónvarpinu þegar ég var lítill og ég er viss um að ég var ekki sá eini. Hún gerði svo mikið fyrir LGBTQ+ samfélagið í heild.
Naya, ég elska þig svo mikið. Ég er svo þakklátur fyrir það sem þú hefur gert fyrir mig og aðra. Ég væri ekki sama manneskjan í dag ef ekki hefði verið fyrir þig. Þú ert ástæðan fyrir því að ég er kallaður Binni Glee – og ég er stoltur af því. Takk fyrir allt.“
Merktur Glee að eilífu
Þættirnir höfðu svo djúpstæð áhrif á Binna að hann lét flúra orðið Glee á handlegginn á sér.
„Það var mitt fyrsta húðflúr og ég var átján ára þegar ég fékk það. Ég man að það var ógeðslega vont en vel þess virði,“ segir Binni, sem er líka með Glee plakat ásamt útskýringu á orðinu uppi á vegg heima hjá sér.
„Glee bara gjörbreytti lífi mínu. Við Patrekur Jaime kynntumst til dæmis bara út af Glee. Hann var ári yngri en ég og við vorum í sama skóla en ást okkar á Glee tengdi okkur og þannig urðum við bestu vinir. Við horfðum saman á lokaþáttinn heima hjá mér og hágrétum saman.
Við geymdum meira að segja pappírinn sem við notuðum til að þurrka tárin svo við myndum aldrei gleyma þessu augnabliki og settum hann í kassa,“
segir Binni kíminn.
Sjokk að sjá sum atriði í dag
Hann hélt sömuleiðis uppi aðdáendareikningi um Glee bæði á Instagram og Youtube og var með tugþúsundir fylgjenda.
„Ég var oft að klippa saman Glee-myndbönd og birta á Youtube ásamt textum við lögin og þau myndbönd eru samanlagt með 31 milljón áhorfa, sem er svolítið galið.“
Það er því ekki að undra að nostalgían geri vart við sig núna þegar ný sería er væntanleg nú ellefu árum síðar.
„Mér finnst ég bara orðinn krakki aftur og ég elska það, þótt þetta sé líka smá tilfinningaþrungið. Ég er mjög spenntur að sjá nýju þættina þó að ég viti ekki alveg við hverju ég á að búast. Þættirnir voru svo ótrúlega óheflaðir á sínum tíma og ég er í smá sjokki núna að horfa á þá og sjá hvað var verið að segja.
Sumt skildi ég líka ekkert þegar ég var yngri og svo sér maður þetta núna og trúir því varla að þetta hafi bara verið sagt í sjónvarpi. Það verður áhugavert að sjá hvernig þau tækla efnið núna í því umhverfi sem við þekkjum í dag,“ segir Binni að lokum.