Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.
Lögreglan í svissnesku kantónunni Aargau fann síðar fleiri poka með líkamshlutum manns eftir leit sem framkvæmd var með aðstoð báts og kafara.
Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að allt bendi til manndráps, samkvæmt frétt svissneska miðilsins blue News.
Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu en hefur engan grunaðan að svo stöddu. Ekki hefur tekist að bera kennsl á hinn látna.