Sviðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR, verður fækkað og ein staða framkvæmdastjóra lögð niður. Jafnframt verður stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð fækkað um sex og ekki verður ráðið í allar lausar stöður næstu misserin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR.
Áætlað er að skipulagsbreytingarnar ásamt öðrum hagræðingaraðgerðum skili um 150 milljónum króna árlega í sparnað þegar þær hafa komið að fullu til framkvæmda.
Mæta kröfum ráðuneytisins
Í tilkynningunni kemur fram að ÁTVR hafi undanfarið unnið að skipulagsbreytingum í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri, bregðast við minnkandi sölu og laga skipulag og ábyrgðarsvið að nýrri stefnu fyrirtækisins. Breytingarnar séu jafnframt liður í að mæta kröfu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um hagræðingu í rekstri.
„ÁTVR hefur síðastliðin sex ár unnið að því að hagræða í rekstri og laga starfsemina að breyttum aðstæðum. Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar hefur stöðugildum fækkað úr 356 í 292, eða um 18% á tímabilinu,“ segir í tilkynningunni.