Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar

Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar

Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar

Aukin krabbameinsáhætta eftir sumar tegundir tæknifrjóvgunar

FréttinAðsend grein, Heilbrigðismál, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment

Júlíus Valsson skrifar:

Tæknifrjóvgun hefur á fáeinum áratugum orðið sjálfsagður hluti nútímalæknisfræði og gert milljónum para kleift að eignast börn. Ný stór dönsk rannsókn, sem birtist í JAMA, vekur þó spurningar um hvort allar aðferðirnar séu jafn áhættulitlar þegar litið er til heilsu barnanna til lengri tíma.

Rannsóknin náði til rúmlega 1,08 milljóna barna sem fæddust í Danmörku á árunum 1996–2012. Þar af voru 37.228 getin með aðstoð frjósemistækni. Börnunum var fylgt eftir allt til ársins 2023, að miðgildi í um tvo áratugi.

Í heild greindist krabbamein með tíðninni 23,6 tilfelli á hver 100.000 mannár meðal barna sem getin voru með aðstoð frjósemistækni, samanborið við 18,3 tilfelli meðal annarra barna.

Það jafngilti um 26% hlutfallslegri aukningu áhættu.

Þarna þarf þó að gæta að tölunum. Tuttugu og sex prósent hljóma mikið, en krabbamein barna er sjaldgæft. Munurinn var um fimm tilfelli á hver 100.000 mannár og algild áhættuaukning því lítil.

Frystir fósturvísar skera sig úr

Athyglisverðasta niðurstaðan sneri að börnum sem fæddust eftir flutning frystra fósturvísa, FET. Þar mældist tíðni krabbameina 41,1 tilfelli á 100.000 mannár, eða meira en tvöfalt hærri en meðal barna sem ekki voru getin með aðstoð frjósemistækni.

Einnig fannst aukin áhætta eftir ICSI, eða smásjárfrjóvgun, þar sem einni sáðfrumu er sprautað beint inn í eggfrumu. Þar var tíðnin 27,9 tilfelli á 100.000 mannár og hlutfallsleg áhætta um 48% meiri.

Hefðbundin glasafrjóvgun, IVF, gaf aðra mynd. Þar var tíðnin 18,5 tilfelli á 100.000 mannár, nánast sú sama og meðal barna sem getin voru án tæknifrjóvgunar. Ekki kom fram marktæk aukning á heildaráhættu krabbameins í þeim hópi.

Frystir fósturvísar algengir á Íslandi

Þessar niðurstöður eiga sérstakt erindi til Íslands, því tæknifrjóvganir eru orðnar umtalsverður hluti allra fæðinga hér á landi.

Samkvæmt fæðingaskrá fæddust 341 barn eftir tæknifrjóvgun hjá Livio Reykjavík árið 2022, eða 7,8% allra lifandi fæddra barna á Íslandi. Tölurnar ná ekki til barna sem urðu til eftir meðferð erlendis, þar sem slíkar upplýsingar hafa ekki verið skráðar með sama hætti.

Skiptingin er sérstaklega athyglisverð í ljósi dönsku rannsóknarinnar. Af þessum 341 börnum fæddust:

  • 177 eftir uppsetningu frystra fósturvísa (FET), eða um 52%,
  • 83 eftir hefðbundna IVF, um 24%,
  • 40 eftir ICSI, um 12%,
  • 41 eftir tæknisæðingu (IUI), um 12%.

Með öðrum orðum varð rúmlega helmingur þeirra barna sem fæddust eftir frjósemismeðferð hjá Livio árið 2022 til eftir FET, einmitt þeirri aðferð sem tengdist mestri áhættuaukningu í dönsku rannsókninni.

Umfang meðferðanna hefur jafnframt aukist. Árið 2022 voru framkvæmdar 604 glasafrjóvgunarmeðferðir, 205 tæknisæðingar og 810 uppsetningar fósturvísa hjá Livio. Uppsetningartalan nær bæði til ferskra og áður frystra fósturvísa og því verður ekki ráðið af henni einni hversu margar uppsetninganna voru FET. Alls fengu 725 einstaklingar eða pör slíka þjónustu það ár.

Tengsl eru ekki sönnun um orsök

Danska rannsóknin sýnir tengsl en getur ekki sannað að frysting fósturvísa eða ICSI valdi krabbameini. Undirliggjandi ófrjósemi foreldra, erfðir, aldur eða aðrir óþekktir þættir gætu átt hlut að máli.

Höfundarnir báru niðurstöðurnar þó einnig saman við börn kvenna með sögu um ófrjósemi og niðurstöðurnar hurfu ekki við þann samanburð. Það styrkir rökin fyrir því að rannsaka þurfi meðferðina sjálfa frekar.

Ísland þarf að fylgjast vel með

Fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu er þetta því rannsókn sem vert er að fylgjast með. Þegar meira en sjö af hverjum hundrað börnum fæðast eftir tæknifrjóvgun og frystir fósturvísar standa að baki stórum hluta þeirra skiptir máli að langtímaöryggi meðferðanna sé rannsakað áfram.

Krabbamein eru mjög sjaldgæf hjá börnum

Ástæða er samt engin til ótta hjá foreldrum. Mikilvægt er að hafa í huga að krabbamein eru mjög sjaldgæf hjá börnum. En þegar aðferð er orðin jafn útbreidd og FET á Íslandi getur jafnvel lítil algild áhættuaukning haft lýðheilsulega þýðingu. Þá er rétt að spyrja hvað skýri muninn. Er það frystingin sjálf, ræktun fósturvísanna, hormónameðferðin, eiginleikar foreldranna eða eitthvað sem enn hefur ekki verið greint?

Höfundur er læknir.

#aukin #eftir #krabbameinsáhætta #sumar #tegundir

Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/10/26/aukin-krabbameinsahaetta-eftir-sumar-tegundir-taeknifrjovgunar/

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
📅 26.10.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður...
Chris Brown á skil­orði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 0
Chris Brown á skil­orði - Vísir
BBC greinir frá. Hinn meðákærði, raddþjálfi Browns og rapparinn Omololu Akinlolu eða HoodyBaby, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm. Báði...
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 0
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
Runólfur hefur gegnt stöðunni í tæp fimm ár og hefði upphaflegum skipunartíma hans lokið þann 1. mars næstkomandi. Í nýjum Spítalapúlsi Landspítalans ...
Áhrifavaldur lifði af fall af 35. hæð – Þetta bjargaði lífi hennar
📅 26.10.2026 👁️ 1
Áhrifavaldur lifði af fall af 35. hæð – Þetta bjargaði lífi hennar
Wan Anan, 27 ára áhrifavaldur frá Kína, lifði af fall af 35. hæð byggingar í borginni Changsa. Næstum hvert einasta bein í líkama hennar brotnaði og þ...
Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? - Vísir
Í hlaðvarpsþættinum Skuggavaldið fjalla prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir um skjalavörðinn Vasilí Mitrokhin. Hann starfaði hjá sové...
Nýtt bókun 35 mál - Fékk ekki að nýta persónuafslátt eiginkonunnar á grundvelli EES
📅 26.10.2026 👁️ 1
Nýtt bókun 35 mál - Fékk ekki að nýta persónuafslátt eiginkonunnar á grundvelli EES
Mál sem tengist innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn, á Íslandi, kom nýlega til kasta yfirskattanefndar. Nefndin staðfesti niðurstöðu ríkisskatts...
Hvernig náði Lula sögulegum sigri í Brasilíu og fjöldahreyfing stúdenta stórsigri í Serbíu?
📅 26.10.2026 👁️ 1
Hvernig náði Lula sögulegum sigri í Brasilíu og fjöldahreyfing stúdenta stórsigri í Serbíu?
Hvernig vann Lula, forseti Brasilíu, sögulegan sigur í landinu í gær og hvernig tókst fjöldahreyfingu stúdenta að vinna stórsigur í þingkosningum í Se...
Samskiptastjóri Landspítala svarar Ragnari Frey
📅 26.10.2026 👁️ 1
Samskiptastjóri Landspítala svarar Ragnari Frey
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir setti stórt spurningamerki við fréttir Landspítala af starfseminni og telur nær að nýta það fjármagn í að opna sjúkrarú...
Russell Brand asked assistant for female fan phone numbers, court hears
📅 26.10.2026 👁️ 1
Russell Brand asked assistant for female fan phone numbers, court hears
Helen Berger said she left her job working for Brand after she became "sick of him."
Aaj TV: Usmani tilkynnti um umfangsmikinn fjárstuðning við Hamas áður en hann kom til Reykjavíkur
📅 26.10.2026 👁️ 1
Aaj TV: Usmani tilkynnti um umfangsmikinn fjárstuðning við Hamas áður en hann kom til Reykjavíkur
Pakistanski fræðimaðurinn Muhammad Taqi Usmani, sem hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi 21. október, hitti Khaled Mashal og Ismail Haniyeh, æðst...
Segir landsbyggðarþingmenn ríkisstjórnarinnar í snúinni stöðu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Segir landsbyggðarþingmenn ríkisstjórnarinnar í snúinni stöðu
Eyjólfur Ármannsson íhugar breytingar á breytingum á Loftbrú. Ákvörðun sem ráðherra kynnti fyrir helgi mætti mikilli mótstöðu; að niðurgreiða sex flug...
Segir rangt að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur
📅 26.10.2026 👁️ 1
Segir rangt að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur
„Hörður hefur verið boðaður á alla stjórnarfundi Landsvirkjunar nema þá þar sem verið er að fjalla um málefni sem tengjast honum beint,“ segir Brynja ...
Stór hluti Ox­ford Street orðinn göngu­gata - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Stór hluti Ox­ford Street orðinn göngu­gata - Vísir
Reuters greinir frá því að lokunin sé varanleg og marki fyrsta skrefið í víðtækari endurnýjun svæðisins. Samkvæmt AP-fréttastofunni nær göngukaflinn f...
Four arrested after police raid suspected drug den in Tenerife
📅 26.10.2026 👁️ 1
Four arrested after police raid suspected drug den in Tenerife
Four people have been arrested in Santa Cruz de Tenerife after the National Police uncovered a suspected drug-dealing operation involving crack cocain...
Áætlun Úkraínumanna um drónaárás á loftvarnir Moskvu hefur verið stöðvuð – FSB (MYNDBAND)
📅 26.10.2026 👁️ 1
Áætlun Úkraínumanna um drónaárás á loftvarnir Moskvu hefur verið stöðvuð – FSB (MYNDBAND)
Áætlun Úkraínumanna um drónaárás á loftvarnir Moskvu hefur verið stöðvuð – FSB (MYNDBAND) Fréttin26. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment...
Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu
Hluta hinnar sögufrægu verslunargötu Oxford-strætis í London var í dag breytt í göngugötu. Sadiq Khan, borgarstjóri í London, sagði að götuhlutanum he...
Gervigreindarmynd Musk um Ódysseif fær harkalega útreið – „Algjört rusl“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Gervigreindarmynd Musk um Ódysseif fær harkalega útreið – „Algjört rusl“
Áhorfendur taka fálega í nýjasta sköpunarverkið úr smiðju auðkýfingsins Elon Musk, um er að ræða fyrsta þátt úr útgáfu hans af Ódysseifskviðu.Líkt og ...
Hilmir Snær svarar gagn­rýn­endum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Hilmir Snær svarar gagn­rýn­endum - Vísir
Menningarvaktin er komin á fulla ferð á Vísi á ný og í nýjasta þættinum fékk Símon Birgisson leikhúsgagnrýnandi til sín Magnús Jochum Pálsson, menning...
36-year-old man in critical condition after falling from balcony in Gran Canaria
📅 26.10.2026 👁️ 3
36-year-old man in critical condition after falling from balcony in Gran Canaria
A 36-year-old man is in a critical condition after falling from a balcony onto a street in Las Palmas de Gran Canaria in the early hours of this morni...
Sagðir vilja fá Or­bán til að stýra Sam­einuðu þjóðunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Sagðir vilja fá Or­bán til að stýra Sam­einuðu þjóðunum - Vísir
Ritstjórn Wall Street Journal, eins af flaggskipunum í fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, sagði frá áhuga ríkisstjórnar Donalds Trump á að fá Orbán til þ...
Mjög lítil áhætta fyrir íslenskan almenning
📅 26.10.2026 👁️ 3
Mjög lítil áhætta fyrir íslenskan almenning
Sóttvarnastofnun Evrópu telur mjög litla hættu á að ebóla greinist í einhverjum mæli í Evrópu í tengslum við faraldurinn sem geisar í Kongó, Kenía og ...
Eitthvað er rotið í Landsvirkjun
📅 26.10.2026 👁️ 3
Eitthvað er rotið í Landsvirkjun
Eitthvað er rotið í Landsvirkjun Fréttin26. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Samsett mynd: Hörður Arnarsson/Landsvirkjun. Páll Vi...
Hæstaréttardómarinn sem framlengdi kosningafrest var áður lögmaður Lulas – sem sneri stöðunni við og vann á ævintýralegan hátt
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hæstaréttardómarinn sem framlengdi kosningafrest var áður lögmaður Lulas – sem sneri stöðunni við og vann á ævintýralegan hátt
Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, var endurkjörinn á sunnudag eftir óvenjulegan endi á forsetakosningunum. Ákvörðun um að lengja kosningafr...
AI giant Anthropic unveils plans for blockbuster share listing
📅 26.10.2026 👁️ 3
AI giant Anthropic unveils plans for blockbuster share listing
The company will be the first true artificial intelligence company to go public as tech firms continue to invest heavily in AI.
Anthropic warns of AI's 'catastrophic risks' ahead of blockbuster share listing

Óttarr Proppé gagnrýnir endurkomu gyðinga til Ísraels – prestur og siðfræðingur „líkar við“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Óttarr Proppé gagnrýnir endurkomu gyðinga til Ísraels – prestur og siðfræðingur „líkar við“
Óttarr Proppé gagnrýnir endurkomu gyðinga til Ísraels – prestur og siðfræðingur „líkar við“ Fréttin26. október 2026Innlent, TrúmálLeave a Comment Sams...
Á­fall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Á­fall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín - Vísir
Sitjandi forseti Brasilíu Lula Da Silva bar sigur úr býtum í seinni umferð forsetakosninga í landinu í gær, hann fékk 51,79 prósent atkvæða en andstæð...
Ætla að rífa um­deilda kaffiskúrinn við Leifs­stöð - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ætla að rífa um­deilda kaffiskúrinn við Leifs­stöð - Vísir
Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í svari við fyrirspurn fréttastofu. Hann segir skúrinn ónýtan vegna viðhaldsskorts og eng...
Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB
📅 26.10.2026 👁️ 3
Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB
Í EES innleiðum við reglur sem samþykktar eru og settar úti í Evrópu án íslenskrar aðkomu en værum við í ESB tækju íslenskir þingmenn þátt í að setja ...
„Líklega er Hannes Hólmsteinn eini stuðningsmaður ættarinnar á Íslandi, eftir að Davíð Oddsson féll frá“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Líklega er Hannes Hólmsteinn eini stuðningsmaður ættarinnar á Íslandi, eftir að Davíð Oddsson féll frá“
Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður, fagnar óvæntum sigri vinstrimannsins Lula í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Hann segir þó í raun undarlegt...
Chris Brown: US singer given suspended eight-month prison sentence over nightclub attack
📅 26.10.2026 👁️ 2
Chris Brown: US singer given suspended eight-month prison sentence over nightclub attack
The R&B star previously pleaded guilty to affray, after attacking a music producer with a glass bottle.
Býður íbúum Hrafnistu í ferðalag
📅 26.10.2026 👁️ 3
Býður íbúum Hrafnistu í ferðalag
„Þetta byrjaði á því að ég las alveg hræðilega bók, vísindaskáldsögu, sem lýsti framtíð þar sem allir voru fastir í einhverjum sýndarveruleika. Ég tók...
Reiður Trump ræðst gegn Norðmönnum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Reiður Trump ræðst gegn Norðmönnum
Reiður Trump ræðst gegn Norðmönnum Banda­ríkja­for­seti vill refsa Norð­mönnum vegna þess að óháð Nóbels­nefndin sæmdi hann ekki frið­ar­verð­launum. ...
Musk segir SpaceX hafa tryggt 40 milljarða dollara fjármögnun fyrir Nvidia-flögur – varar við gjaldþrotahrinu í gervigreindargeiranum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Musk segir SpaceX hafa tryggt 40 milljarða dollara fjármögnun fyrir Nvidia-flögur – varar við gjaldþrotahrinu í gervigreindargeiranum
Musk segir SpaceX hafa tryggt 40 milljarða dollara fjármögnun fyrir Nvidia-flögur – varar við gjaldþrotahrinu í gervigreindargeiranum Fréttin26. októb...
Sturluð skvísulæti í stór­af­mæli - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Sturluð skvísulæti í stór­af­mæli - Vísir
NTC rekur meðal annars verslanirnar Evu/GK, Companys, Kultur, GS Skó, Gallerí Sautján og Karakter og var tímamótunum fagnað með öllu starfsfólki á Vin...
Fækka ferðum 1. desember
📅 26.10.2026 👁️ 3
Fækka ferðum 1. desember
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ohf., sem sér um rekstur Strætó, ætlar að fækka ferðum frá og með 1. desember.„Við erum sífellt að þróa leiða...
Lula vinnur forsetakosningarnar í Brasilíu – Bolsonaro hafnar úrslitunum og krefst ógildingar
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lula vinnur forsetakosningarnar í Brasilíu – Bolsonaro hafnar úrslitunum og krefst ógildingar
Lula vinnur forsetakosningarnar í Brasilíu – Bolsonaro hafnar úrslitunum og krefst ógildingar Fréttin26. október 2026Erlent, KosningarLeave a Comment ...
Andy Burnham leaves door open to referendum on EU free movement
📅 26.10.2026 👁️ 3
Andy Burnham leaves door open to referendum on EU free movement
The PM says he wants to start a conversation about potential options for the UK's future relationship with the EU.
Ný rannsókn SÞ segir Ísrael stunda „útrýmingu“ á Vesturbakkanum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ný rannsókn SÞ segir Ísrael stunda „útrýmingu“ á Vesturbakkanum
Ný rannsókn SÞ segir Ísrael stunda „útrýmingu“ á Vesturbakkanum Óháð rann­sókn­ar­nefnd SÞ segir ísra­elskar her­sveitir fremja „útrým­ingu“ og stríðs...
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku - Vísir
Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar sem á dögunum sagði sig úr þingflokknum, hefur í viðtölum sagt að sér þyki óeðlilegt að varaformaður þingflokksins, Ma...
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks
📅 26.10.2026 👁️ 4
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík...
Vinkona Claudiu lést eftir ranga greiningu – „Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það að vera erlend hafi átt þátt í því“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vinkona Claudiu lést eftir ranga greiningu – „Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það að vera erlend hafi átt þátt í því“
Clauda Wilson Molloy, lögmaður, greinir frá máli vinkonu sinnar sem lést úr krabbameini eftir að hafa verið ranglega greind í mörg skipti á Íslandi. H...
Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar - Vísir
Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni mannsins segir að málið varði miskabótakröfu mannsins vegna stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis frá ...
Deila um sótt­kví fer alla leið - Vísir

Kanna möguleika á að geyma koldíoxíð á Grundartanga
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kanna möguleika á að geyma koldíoxíð á Grundartanga
Rannsóknir standa yfir á því hvort að jarðlög á Grundartanga henti til að binda þar koldíoxíð.Boruð var hola sem nær niður á 1.504 metra dýpi. Hún er ...
Take a stroll down newly-pedestrianised Oxford Street
📅 26.10.2026 👁️ 3
Take a stroll down newly-pedestrianised Oxford Street
The first phase of the overhaul is expected to be finished by spring 2027.
„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Í stað þess að fargjald sé...
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr - Vísir
Þá greinum við frá því að fjármálaráðherra segist sjálfur ekki hafa hafnað fundi með Herði Arnarsyni, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Hörður segi...
Tóku í gegn fjögur hundruð fer­metra ein­býli í Hafnar­firði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tóku í gegn fjögur hundruð fer­metra ein­býli í Hafnar­firði - Vísir
Hún og eiginmaðurinn hafa núna tekið það rækilega í gegn, innan sem utan. Eins og fram kom í þættinum elskar Lucinda þunga hluti, gamla muni og að ger...
Leita Lúðvíks á morgun
📅 26.10.2026 👁️ 4
Leita Lúðvíks á morgun
Hópur manna á vegum lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að því í dag að undirbúa leit að líki Lúðvíks Péturssonar sem féll í gryfju í Grindavík í ja...