Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður axarsköftum og pólitískum sjálfsmörkum.Ráðist var í uppsagnir til að hagræða í borgarkerfinu. Um 90 manns var sagt upp en svo kom í ljós að, úps, þarna hafi ómissandi fólki verið sagt upp störfum og því þurfti að fá fólkið til baka. Um þriðjungur þeirra sem voru rekin eru nú aftur komin til starfa. Orðið á götunni er að stundum sé betur heima setið en að leggja í vanhugsað gönuhlaup.
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík