Í hlaðvarpsþættinum Skuggavaldið fjalla prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir um skjalavörðinn Vasilí Mitrokhin. Hann starfaði hjá sovésku leyniþjónustunni KGB í áratugi og skrifaði í laumi upp leyndarmál hennar á tólf ára tímabili.
Eiríkur og Hulda ræddu málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Fjölmiðillinn Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL) greindi frá því í sumar að í óbirtu handriti úr Mitrokhin-skjölunum komi fram að bandaríski erindrekinn Frederick Flott hafi um miðjan áttunda áratuginn afhent KGB yfir hundrað leynileg skeyti frá bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Lést í skugga ásakana
Flott var túlkur Roberts Kennedys í óvenjulegri ferð hans um Sovétríkin árið 1955 og fékk í kjölfar hennar dulnefnið „Douglas“ hjá KGB. Samkvæmt skjölunum lét Júrí Andropov, þáverandi yfirmaður KGB og síðar leiðtogi Sovétríkjanna, greiða flugferð Flotts til Moskvu árið 1974 ásamt tíu þúsund dala þóknun.
Flott lést árið 2006 án þess að hafa svarað ásökununum. Ættingjar hans vísa þeim á bug og engar opinberar heimildir staðfesta Moskvuferðina. Málið sýnir engu að síður að fræðimenn eru enn að afhjúpa nýja sögu úr skjölunum, rúmum þremur áratugum eftir að þau bárust til Vesturlanda.
En hver var Mitrokhin? Í Skuggavaldinu er sögð saga þessa hægláta skjalavarðar sem fékk slíka óbeit á kerfinu að hann einsetti sér að fella það. Eftir að hafa verið færður niður í skjalasafnið, þar sem myrkustu leyndarmál KGB fóru í gegnum hendur hans, fæddist hugmyndin um hefnd.
Aðferð hans var fífldjörf: Hann stal aldrei skjölum heldur hripaði örsmáar minnisgreinar á blöð, faldi þau í skónum og gekk fram hjá vörðunum á hverju kvöldi í tólf ár. Heima vélritaði hann minnispunktana og gróf blaðsíðurnar í mjólkurbrúsum undir gólfi sumarhúss síns skammt frá Moskvu, án þess að fjölskyldan vissi nokkuð.
Sýnishorn falin undir brauði og pylsum
Eftir hrun Sovétríkjanna tók hann lest til Eystrasaltslandanna, dularklæddur sem fátækur maður, með sýnishorn úr skjalasafninu falin undir brauði og pylsum í tösku sinni. Bandaríkjamenn vísuðu honum frá en Bretar áttuðu sig fljótt á verðmæti skjalanna.
Þann 7. nóvember 1992 var Mitrokhin, fjölskyldu hans og þúsundum blaðsíðna af leyniskjölum komið með leynd til Bretlands.
Skjölin vöktu mikla athygli og töluverða röskun í njósnaheiminum vestan hafs sem austan, en talið er að þau hafi komið upp um tæplega þúsund útsendara KGB um allan heim.
Þáttur Skuggavaldsins sem kemur út í dag er sá fyrri af tveimur um Mitrokhin-skjölin. Í seinni þættinum verður sögð saga breskrar ömmu sem njósnaði fyrir Sovétríkin í fjóra áratugi án þess að nokkurn grunaði.
Skuggavaldið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.