Hvernig vann Lula, forseti Brasilíu, sögulegan sigur í landinu í gær og hvernig tókst fjöldahreyfingu stúdenta að vinna stórsigur í þingkosningum í Serbíu?
Hvað þýða þessar niðurstöður beggja vegna Atlantsála? Við ætlum að komast að því.
Frambjóðandi í öðru sæti fyrri umferðar hefur aldrei unnið forsetakosningar
Byrjum á Brasilíu. Luiz Inácio Lula da Silva var endurkjörinn forseti landsins í síðari umferð forsetakosninganna í gær eftir að hafa tapað naumlega í fyrri umferðinni. Sigurinn var þó líka naumur því han fékk 51, 8 prósent atkvæða meðan mótframbjóðandi hans, Flavio Bolsonaro, fékk 48,2 prósent.
Bolsonaro er sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta landsins, sem situr í 27 ára fangelsi fyrir tilraun til valdaráns. Bolsonaro yngri er 45 ára og kynnti sig sem heldur hófsamari og glaðværari mann en föður sinn. Hann er hægri maður og náði bæði til íhaldssamra kjósenda og þeirra sem vildu breytingar.
Lula bauð sig fram gegn Jair Bolsonaro 2022 og vann þær kosningar. Hann bauð sig fyrst fram til forseta 1989 en náði fyrst kjöri 2003 og var forseti til 2010. Hann varð aftur kjörinn í embættið 2023.
Þetta er í fjórða sinn sem hann er kjörinn forseti. Hann sat í fangelsi vegna spillingarmáls í 18 mánuði en ákærur gegn honum voru síðar felldar niður vegna formgalla.
Úrslit kosninganna í gær eru líka söguleg. Frá því að lýðræði var komið aftur á í Brasilíu á níunda áratug síðustu aldar hefur það aldrei gerst að frambjóðandi sem hafnaði í öðru sæti í fyrri umferð færi með sigur af hólmi í seinni umferð.
Erfið leið að forsetaembættinu
Leið Lula að forsetastólnum í þetta skiptið var alls ekki auðveld. Hann tapaði fyrri umferð kosninganna 4. október og eftir það afskrifuðu hann margir og töldu algjörlega ógmögulegt að hann gæti snúið úrslitunum sér í vil á þremur vikum.
Sigur Lula er einnig áhugaverður í ljósi þess að undanfarið hafa kjósendur refsað leiðtogum sem sitja í embætti og kosið hægri sinnaðri frambjóðendur.
Þetta hefur gerst yfir alla álfuna, í Argentínu, Ekvador, Síle og Kólumbíu. Þar hafa íhaldssamir frambjóðendur sem aðhyllast Donald Trump Bandaríkjaforseta og hans hugmyndafræði komist til valda.
Þrátt fyrir naumt tap í fyrri umferð forsetakosninganna tvíefldust stuðningsmenn Lula. Þeir stóðu fyrir fjöldafundum til að hvetja fólk til að kjósa hann og voru með öfluga herferð á samfélagsmiðlum.
Á síðastliðnum fjórum árum hefur Lula tekist að draga úr verðbólgu og atvinnuleysi í landinu og auka lífsgæði þjóðarinnar. Margir kjósendur þakka honum einnig fyrir að draga úr eyðingu skóglendis í Amazon-regnskóginum.
Engu að síður voru margir kjósendur óánægðir með háan framfærslukostnað og glæpatíðni.
Klofin þjóð og hægrisinnaðra þing en nokkru sinni
Nýtt kjörtímabil Lula hefst 5. janúar 2027 og ljóst að hann á eftir að mæta miklu mótlæti, bæði heimafyrir en að utan. Trump Bandaríkjaforseti er enginn stuðningsmaður hans.
Samkvæmt utanríkisstefnu sem bandarísk stjórnvöld tóku upp við endurkjör Trumps er Suður-Ameríka á áhrifasvæði Bandaríkjanna. Stjórn Trumps vill gjarnan að þar séu við völd leiðtogar sem styðja stefnu bandarískra stjórnvalda. Bandaríkin vilja einnig minnnka áhrif Kína í heimshlutanum en Lula hefur verið vinveittur kínverskum stjórnvöldum.
Bolsonaro hafði lofað kjósendum að færa Brasilíu nær Bandaríkjunum og stefnu stjórnvalda þar en Lula varaði Bandaríkjastjórn við því að skipta sér af forsetakosningunum. Brasilía hefur yfir að ráða olíuauðlindum og þar er að finna næst mest af sjaldgæfum jarðmálmum í heimi.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru því eflaust vonsvikin með úrslitin en þau þykja sigur fyrir umhverfisverndarsinna sem óttuðust að sigur Bolsonaro myndi stórefla landbúnað og gefa námufyrirtækjum aukin völd.
Þrátt fyrir sigur Lula er ljóst að landið er klofið. Rúmlega 48 prósent kjósenda kusu Bolsonaro og flokkur hans, Frjálslyndi flokkurinn, bætti mest við sig í kosningunum. Hann þarf því að finna út úr því hvernig hann ætlar að stjórna landinu með stuðningi þings sem er hægrisinnaðra nú en nokkru sinni síðan lýðræði komst aftur á í landinu.
Kosningar upp úr mestu mótmælum í sögu Serbíu
Fagnaðarlæti brutust út í mörgum borgum og bæjum Serbíu í gær og nótt eftir að ljóst varð að fjöldahreyfing stúdenta vann stórsigur í þingkosningum. Þar með lauk 14 ára valdatíð Aleksandar Vučić, fyrrverandi forstea, og flokks hans, Serbneska framfaraflokksins.
Vučić var við það að klára sitt annað kjörtímabil sem forseti í haust þegar hann tilkynnti að hann ætlaði að rjúfa þing og boða til kosninga. Tveimur vikum síðar tilkynnti hann um afsögn sína sem forseti. Hann hefur gegnt því embætti síðan 2017.
Samkvæmt stjórnarskrá landsins má ekki vera forseti lengur en tvö kjörtímabil. Vučić bauð sig því fram sem forsætisráðherra í þingkosningunum í gær.
Þessi ákvörðun Vučić um að boða til kosninga á sér þó lengri aðdraganda. Fyrir tveimur árum létust 16 manns þegar þak á útisvæði við aðallestarstöðina í borginni Novi Sad hrundi.
Eftir harmleikinn brutust út mestu mótmæli í sögu landsins. Mótmælendur sögðu harmleikinn í Novi Sad hafa orðið vegna kerfislægrar spillingar og skorts á sérfræðieftirliti. Lestarstöðin hafði verið gerð upp skömmu fyrir atvikið.
Mótmælin snerust fljótt að stjórnvöldum og kerfinu og hvort það væri yfirhöfuð mögulegt að draga einhvern til ábyrgðar. Í marga mánuði kom fólk saman og mótmælti um allt land. Krafan var að fá kosningar.
Það tók þó sinn tíma að fá í gegn kosningar. Forsætisráðherra landsins, og bandamaður Vučić, tilkynnti afsögn sína í janúar 2025. Mótmælin héldu þó áfram og það var ekki fyrr en í september sem Vučić boðaði til kosninga.
Fjöldahreyfing stúdenta var stofnuð í kjölfar mótmælanna fyrir tveimur árum. 250 frambjóðendur eru á lista hreyfingarinnar og fæstir með reynslu á sjtórnmálum. Framjóðendur komu hvaðanæva að úr serbnesku samfélagi en í kosningabaráttunni náðu frambjóðendur eyrum margra kjósenda sem voru andvígir ríkisstjórninnni.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum kosninganna hlaut hreyfingin 52,6 prósent atkvæða en flokkur Vučić 39,2 prósent.
Endurheimtu framtíðina eftir 14 ár eymdar og spillingar
Í sigurræðu sagði Radomir Saicic, einn frambjóðandi hreyfingarinnar, að Serbar hefðu sýnt fram á að engin hindrun væri sterkari en vilji þeirra, samkvæmt Reuters.
„Ekkert afl getur um alla framtíð kúgað þjóð sem hefur ákveðið að taka eigin örlög í sínar hendur.“
Einn kjósandi sagði eftir að úrslitin voru ljós að serbneska þjóðin væri loksins frjáls á ný. „Eftir 14 ár eymdar og spillingar hefur okkur tekist að endurheimta framtíð okkar.“
Ilija Srdanović er prófessor í hjartalækningum frá Novi Sad. Hann hefur undanfarið orðið leiðtogi hreyfingarinnar. Breska ríkisútvarpið, BBC, ræddi við hann í mótmælagöngu stúdenta í Belgrad í síðustu viku. Þar sagði hann orkuna í fólkinu óstöðvandi.
„Við bjóðum almenningi upp á þau grunngildi sem einkenna siðað samfélag, gildi sem þessi ríkisstjórn hefur tekið frá þeim. Nú verður þar ekki látið viðgangast.“
En stóra spurningin er hver verði forsætisráðherra eftir þennan kosningasigur? Srdanović þykir ólíklegur en það eru nokkrir sem koma til greina.
Samkvæmt útgönguspám óháðu könnunarfyrirtækjanna Ipsos og CeSID hafa 140 af þeim 250 sem voru á lista fjöldahreyfingarinnar hlotið sæti á þingi. Þar á meðal eru fyrrverandi kröfuboltaleikmaðurinn Dejan Bodiroga, leikarinn Tihomir Stanić, óperusögnvarinn Nikola Mikić, Dejan Šoškić sem er fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Serbíu og fjöldi prófessora.
Šoškić hefur oftast verið nefndur í þessu samhengi. Hann hefur verið gagnrýninn á hagkerfi landsins og komið með tillögur að endurbótum.
Þingmenn eiga þó ærið verk fyrir höndum, að framfylgja stefnuskrá sinni. Hún felur meðal annars í sér að uppræta spillingu með því að koma á fót sérstakri deild innan lögreglunnar til að rannsaka spillingu.
Hreyfingin vill líka hreinsa þá embættismenn út úr innanríkisráðuneytinu sem brutu reglur við aðgerðir gegn mótmælendum, eða alla þá sem tengjast skipulagðri glæpastafsemi. Hún vill einnig endurbæta fjölmiðlaumhverfi landsins og frelsa ríkisútvarpið undan pólitískum afskiptum og hætta að skipa flokksbundið fólk í stjórnunarstöður opinbera fyrirtækja.